Aðgengi fyrir fatlaða
Inngangur
Núverandi húsnæði býður ekki, eins og stendur, upp á nægilega gott aðgengi fyrir fatlaða.
Aðalinngangurinn er upp tröppur en til þess að komast hjá þeim er hægt að ganga inní gagnum portið sem er til hægri við aðaldyrnar. Þar kemst maður inná bókasafnið og þaðan inná kaffibarinn.
Salernin
Hvað varðar salernisaðstöðu þá eru salernin niðrí kjallaranum og liggur nokkuð torfær stigi niður að þeim með engum handföngum en sem komið er. Einnig er vert að benda á að klósettin eru ekki hjólastólafær sökum smæðar þeirra. Við sjáum ekki fram á breytingar á salernum í náinni framtíð þar sem kostnaðurinn yrði of mikill biti fyrir okkur að kyngja í núverandi húsnæði.
Aðstoð
Starfsfólk er þó ávallt til í að aðstoða eins mikið og þörf er á.
Today's page views: 122
Today's unique visitors: 18
Yesterday's page views: 306
Yesterday's unique visitors: 74
Total page views: 286380
Total unique visitors: 46501
Updated numbers: 18.3.2010 05:38:36



