Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN user name:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Address:

Laugavegur 23

Phone:

5171980

About:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Hvað vantar á Kaffi Hljómalind

 Croissant

 Fleiri Te

 Meiri mat

 Boost drykki

 Nýkreista safa


Show results

Links

Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja (corporate social responsability)

Ein skilgreining á samfélagslegri ábyrgð er þegar fyrirtæki tekur upp á eigin spýtur á því að leggja sitt af mörkum til að gera samfélagið betra og umhverfið hreinna. 

Samfélagsleg ábyrgð Kaffi Hljómalindar

Kaffi Hljómalind er starfrækt til þess að hafa jákvæð og uppbyggileg áhrif á samfélagið og umhverfið. 
(grundvallar stefna Hljómalindar)

  • Endurvinnum nánast allan úrgang nema lífrænan úrgang þar sem ekki er hentugt að hafa moltu á bílastæði.
  • Stjórnskipulag fyrirtækisins er lárétt og hafa starfsmenn mikið um það að segja hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig fyrirtækinu er stjórnað.
    • laun
    • aðbúnaður
    • starfsreglur
  • Ef hagnaður er af rekstrinum þá er hluti af honum gefinn til góðgerðamála.
  • Reynt er að rækta persónulegt samband við viðskiptavini þar sem hlýtt er á þarfir hans.
  • Notast er við einróma ákvörðunarferli á öllum fundum fyrirtækisins
  • Notast er við lífrænar vörur í öllum tilvikum þar sem slíkt er hægt.
  • Reynt er að stunda öll viðskipti á sanngjarnan hátt (fair trade)
    • Kaffið er fengið frá samvinnurekinni kaffibrennslu í Mexico sem fær það frá samvinnureknu fyrirtæki í Chiapas Mexico. Borgað er sanngjarnt verð og kaffið er lífrænt ræktað.
  • Er ekki rekið í hagnaðarskyni fyrir hluthafa heldur er það samvinnurekið þar sem hagnaður fer aftur í fyrirtækið, til samfélagslegra verkefna, lækka vöruverð eða hækka laun meðlima.
  • Starfar án áfengisleyfis til þess að stuðla að vímaefnalausu umhverfi í miðbænum og leyfa allan aldur inni á staðnum.
  • Tekur virkan þátt í að stuðla að líflegu menningalífi í kringum sig með tónleikahaldi, listasýningum, bíósýningum, jógakennslu og fleiru í þeim dúr.
  • Selur einungis jurtafæði og stuðlar þar með að betri meðferð dýra.
  • Dyr Kaffi Hljómalindar eru opnar öllum, óháð aldri, kynþætti, kyni, þjóðerni og öðrum viðlíka þáttum.


Nánar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hér



Today's page views: 212
Today's unique visitors: 59
Yesterday's page views: 43
Yesterday's unique visitors: 10
Total page views: 286164
Total unique visitors: 46468
Updated numbers: 17.3.2010 17:54:17
Email