Samfélagsleg ábyrgð
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja (corporate social responsability)
Ein skilgreining á samfélagslegri ábyrgð er þegar fyrirtæki tekur upp á eigin spýtur á því að leggja sitt af mörkum til að gera samfélagið betra og umhverfið hreinna.
Samfélagsleg ábyrgð Kaffi Hljómalindar
Kaffi Hljómalind er starfrækt til þess að hafa jákvæð og uppbyggileg áhrif á samfélagið og umhverfið.
(grundvallar stefna Hljómalindar)
(grundvallar stefna Hljómalindar)
- Endurvinnum nánast allan úrgang nema lífrænan úrgang þar sem ekki er hentugt að hafa moltu á bílastæði.
- Stjórnskipulag fyrirtækisins er lárétt og hafa starfsmenn mikið um það að segja hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig fyrirtækinu er stjórnað.
- laun
- aðbúnaður
- starfsreglur
- Ef hagnaður er af rekstrinum þá er hluti af honum gefinn til góðgerðamála.
- Reynt er að rækta persónulegt samband við viðskiptavini þar sem hlýtt er á þarfir hans.
- Notast er við einróma ákvörðunarferli á öllum fundum fyrirtækisins
- Notast er við lífrænar vörur í öllum tilvikum þar sem slíkt er hægt.
- Reynt er að stunda öll viðskipti á sanngjarnan hátt (fair trade)
- Kaffið er fengið frá samvinnurekinni kaffibrennslu í Mexico sem fær það frá samvinnureknu fyrirtæki í Chiapas Mexico. Borgað er sanngjarnt verð og kaffið er lífrænt ræktað.
- Er ekki rekið í hagnaðarskyni fyrir hluthafa heldur er það samvinnurekið þar sem hagnaður fer aftur í fyrirtækið, til samfélagslegra verkefna, lækka vöruverð eða hækka laun meðlima.
- Starfar án áfengisleyfis til þess að stuðla að vímaefnalausu umhverfi í miðbænum og leyfa allan aldur inni á staðnum.
- Tekur virkan þátt í að stuðla að líflegu menningalífi í kringum sig með tónleikahaldi, listasýningum, bíósýningum, jógakennslu og fleiru í þeim dúr.
- Selur einungis jurtafæði og stuðlar þar með að betri meðferð dýra.
-
Dyr Kaffi Hljómalindar eru opnar öllum, óháð aldri, kynþætti, kyni, þjóðerni og öðrum viðlíka þáttum.
Nánar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hér
Flettingar í dag: 120
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548182
Samtals gestir: 94099
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 12:53:41



