Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN user name:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Address:

Laugavegur 23

Phone:

5171980

About:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Hvað vantar á Kaffi Hljómalind

 Croissant

 Fleiri Te

 Meiri mat

 Boost drykki

 Nýkreista safa


Show results

Links

Um okkur

Kaffi Hljómalind er staðsett Laugavegi 23 og er er opin Mánudaga - Föstudaga frá 09:00 til 23:00, Laugardaga frá 11:00 til 23:00 og Sunnudaga frá 11:00 til 18:00.

Fyrirtækið var sett á laggirnar árið 2004 og hefur allar götur síðan verið öflugt í að bjóða hágæða kaffi ,stuðla að umhverfisvernd á allan hátt í rekstri sínum og vera lifandi menningarmiðstöð í hjarta miðbæjarins.

Kaffi Hljómalind er samvinnurekið fyrirtæki þar sem hugmyndin er að sem flestir starfsmenn séu eigendur og valdinu innan veggja fyrirtækisins sé sem mest dreift. Þetta er gert með reglulegu fundarhaldi með öllum starfsmönnum staðarinns þar sem notast er við einróma ákvörðunarferli. Slíkt ákvörðunarferli miðar út frá því að allir geti komist að sameiginlegri ákvörðun án þess að skilja "minnihlutann" útundan.

Staðurinn er einn af fáum tónleikastöðum í miðbæ Reykjavíkur en við hýsum tónleika í hverri viku þar sem ekkert aldurstakmark er og oftar en ekki frítt.

Innan Hljómalindar er að sjálfsögðu kaffihús en einnig er bókasafn andspyrnu þar sem hægt er að fá róttækar bókmenntir um t.d dýravernd, pólitík, heimsspeki, samvinnurekstur endurgjaldslaust í tvær vikur. Listaháskólinn er einnig með aðsetur í kjallaranum þar sem starfsrækt er nemendagallerí. Svo er baksalur Hljómalindar félagsmiðstöð eða "social center" þar sem hópur af fólki kemur saman og stendur fyrir ýmisskonar menningartengdri dagskrá.

Hljómalind er ekki bara kaffihús heldur svo miklu meira...............

Today's page views: 122
Today's unique visitors: 18
Yesterday's page views: 306
Yesterday's unique visitors: 74
Total page views: 286380
Total unique visitors: 46501
Updated numbers: 18.3.2010 05:38:36
Email