Samvinnurekstur
Kaffi Hljómalind var stofnað sem samvinnurekið fyrirtæki og byggir á hugmyndafræðinni Prout (progressive utilisation theory) sem er að koma sterk inn í dag (m.a í Venezuela)(sjá rannsóknarsetur um Prout, Priven.
Tilgangurinn með samvinnurekstri er að dreifa valdi, tryggja lágmarkslaun miðað við efnahag og halda launamismun innan réttláts ramma. Einnig er sjálfbærni mikilvægur þáttur í samvinnurekstri. Samvinnurekstur felur í sér að sem flestir starfsmenn fyrirtækisins eru meðeigendur og hafa atkvæðarétt um reksturinn, á fundum Hljómalindar er notast við einróma samþykki eða consensus decision making til þess að tryggja að sem flestir geti látið í sér heyra.
Á Kaffi Hljómalind er reynt að fylgja þessum markmiðum eftir bestu getu.
Ef þig langar að kynnast samvinnurekstri frekar eða hefur áhuga á að breyta þínu fyrirtæki í samvinnurekið, hafðu þá endilega samband og við gerum hvað við getum til að aðstoða þig.

