26.08.2009 22:07
Leikhús á Hljómalind
Enskt hádegisleikhús mun standa yfir í tvo daga á Kaffi Hljómalind nú
í byrjun september. Er þetta í fyrsta skipti sem leikritið Elskendur -
Sigurvegarar eftir Brian Friel er sýnt hér á landi. Leikendur eru
Melkorka Óskarsdóttir og Adam Slynn sem bæði útskrifuðust þau úr
enska leiklistarskólanum LAMDA á síðasta ári. Verkið fylgir ungu írsku
pari á fallegum sumardegi árið 1966 þegar aðeins fjórir dagar eru til
stefnu fyrir lokapróf. Framtíðin er þeim einkar hugleikin þar sem þau
eiga von á barni og eru um það bil að fara að gifta sig. Leikstjóri er
Joseph Blatchley.
Sýningin fer fram á ensku og er tekur um 30 mínútur í flutningi svo að
það hentar vel að grípa sér kaffibolla eða samloku á Kaffi Hljómalind
og njóta ókeypis leikhúss.
Sýningar verða kl. 12.30 föstudaginn 4. og laugardaginn 5. september.
Skrifað af Kaffi Hljómalind
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548198
Samtals gestir: 94101
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 14:34:36



