Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

20.03.2009 13:05

Hvað er Kaffi Hljómalind?

 Kaffi Hljómalind er áfengis- og vímuefnalaust kaffihús og menningarmiðstöð. Það er samvinnurekið, sem þýðir að það er  ekki rekið í hagnaðarskyni heldur með það að markmiði að auka félagsauð og hafa jákvæð, uppbyggileg áhrif á samfélagið.  Allur umframágóði eftir fastan kostnað rennur beint inn í  starfsemina fyrir utan lítinn hluta sem rennur í góðgerðarmál.


 Bakatil í Hljómalind er fjölnota salur; félagsrými, sem er opið  allri starfsemi, endurgjaldslaust. Með því að bjóða þetta rými vill Kaffi Hljómalind leggja öllu góðu málefni lið og leggja af mörkum til grasrótarhópa sem hafa lítið fé milli handanna. Hljómalind skaffar rýmið - hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur almennings sér um restina. Þetta fyrirkomulag hefur gefið gífurlega góða raun, Hljómalind er dínamískur staður í stöðugum vexti.

Allar götur frá opnun eru viðburðir Hljómalindar að meðaltali einn á dag. Má þar nefna jóga- og danstíma, ljóðaupplestur, saumaklúbba, hráfæðisnámskeið, fyrirlestra af ýmsu tagi, kvikmynda-, dans- og myndlistarsýningar, grasrótarfundi, stofnun ýmissa félaga s.s. fair trade félag Íslands og vinir Tíbets, málstofur, ráðstefnur, námskeið, tónleika, pabbamorgna, pólitískar umræður o.s.frv. o.s.frv. Listinn er endalaus.

Hljómalind er löngu þekkt fyrir lifandi tónlist, en þar hafa ótal hljómsveitir spilað. Allur tónlistarskalinn hefur hljómað þar; harðkjarni, djass, klassík, popp, raftónlist, þjóðlagatónlist, rokk o.s.frv. Grasrótin hefur mikið spilað á Hljómalind og er sérstök áhersla lögð á að halda dyrunum opnum fyrir ungu kynslóðinni, þ.e. grunn- og menntaskólanemum, sem hefur ekki í mörg hús að venda sökum aldurstakmarks.

Kaffi Hljómalind er rólegur og afslappaður staður þar sem hægt er að setjast í mjúkan hægindastól og lesa fróðlegar bækur um ýmis málefni. Ávallt hefur verið hægt að kaupa góðar bækur á Hljómalind en nú hefur bæst við bókasafn sem gerir fólki kleift að fá lánaða bók heim, endurgjaldslaust.

Á Kaffi Hljómalind eru eingöngu seldar lífrænar veitingar og "fair trade" þegar því er viðkomið. Við flytjum kaffið okkar inn sjálf, beint frá frelsishreyfingu Sapatista í Mexíkó. Við sem rekum Hljómalind viljum að allir hafi þann valkost að neyta lífrænna veitingar, án þess að þurfa að tæma budduna alveg og því eru verðin okkar svipuð og verð annara kaffihúsa.

Segja má að Kaffi Hljómalind sé sambærileg við félagsmiðstöð, þar sem selt er "kaffi og meðí" til að eiga fyrir leigunni og öðrum rekstrarkostnaði.




Flettingar í dag: 215
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548277
Samtals gestir: 94103
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 15:13:19
Email