Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Hvað vantar á Kaffi Hljómalind

 Croissant

 Fleiri Te

 Meiri mat

 Boost drykki

 Nýkreista safa


Sýna niðurstöður

Tenglar

Fréttir

30.1.2009

7. .þjóðfundurinn á Kaffi Hljómalind laugardag kl 13-15

FRÉTTATILKYNNING

7. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 31. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.

Þessi tala:
Egill Helgason blaðamaður og Helga Vala Helgadóttir laganemi.

Þessi syngja:
Pikknikk

Þessi stjórnar fundinum:
Ellen Kristjánsdóttir söngkona.



7. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 31. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.

Hvernig á stjórnlagaþingið að vera og starfa. Hvernig veljum við fulltrúa á það? Hvernig skipuleggjum við kosningar til stjórnlagaþings. Verður hægt að kjósa til stjórnlagaþings jafnhliða þingkosningum. Er ekki tilvalið að nýta þingkosningar til að kjósa um fleiri atriði sem þjóðin þarf að segja skoðun sína á.

Fólk er hvatt til þess að koma og hittast og ræða málin eins og lýðræði gerir ráð fyrir.

Hvernig gera menn grunnlög? Hvað er stjórnlagaþing og hvernig má stofna til stjórnlagaþings án aðkomu valdaklíkunnar og jafnvel í andstöðu við hana? Er von á lýðræði á Íslandi?
Hvernig getur þjóð varpað af sér oki valdaklíku sem hefur skapað og umbreytt stjórnarskrá sem tryggir áframhaldandi völd þeirra. Allar manneskjur velkomnar. Aðgangur endurgjaldslaus og veitingarnar frábærar.


Framboðslistar klúbbanna einoka flóruna í Alþingikosningum og fá umbun fyrir að bjóða fram í öllum kjördæmum í formi uppbótaþingmanna. Þeir fá einnig greidda opinbera styrki í hlutfalli við útkomu úr kosningum. Stjórnmálaklúbbarnir hafa mikla fjármuni milli handanna í í átökum um vinsældir meðan á kosningabaráttu stendur. Peningarnir eru notaðir m.a. í auglýsingar til að auka kosningafylgi rétt eins og um tannkrem væri að ræða. Þrátt fyrir aðkomu þeirra að þinginu og landstjórninni er nánast ekkert eftirlit með fjármál klúbbanna og alls ekki gagnsætt hvaðan fjármunir þeirra koma, né til hvers gefendur ætlast af frambjóðendum komist þeir á þing. Það gefur auga leið að svona kerfi er ávísun á spillingu.

Skrifað 30.1.2009 kl. 23:43 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 165
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 1264
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 374459
Samtals gestir: 57440
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 07:55:03
Email