Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

09.01.2009 23:11

Ótrúlega áhugaverð ljósmyndasýning sett upp í félagsrýminu

"Fimmtudagskvöldið 8. Janúar kl. 20:00 verður ljósmyndasýning og
kynning á verkefninu:

Kynlíf + peningar
Leit að virði mannlífs

Á undanförnu ári hafa vinirnir Tim (frá Bandaríkjunum) og Jeong (frá
Suður-Kóreu) ferðast um gjörvallan þriðja heiminn, tekið myndir og
fangað málefni á borð við mansal og kynlífsþrælkun.

Reynslu sinni lýsa þeir á eftirfarandi hátt:

Í fyrstu virtist upplifunin æði misjöfn, jafnvel handahófskennd. Hins
vegar, þegar leið á ferðalagið fórum við að taka eftir rauðum þræði
sem tengdi saman ferðirnar okkar. Í hverju einasta landi sem við
heimsóttum (alls tuttugu talsins) heyrðum við sársaukafullar sögur af
mannlegri þjáningu í skugga hungurs, sjúkdóma og einmanaleika.

En það var meira. Við sáum flett af enn ljótari fyrirbærum á þeim
stöðum sem við heimsóttum; mansali og kynlífsþrælkun. Það kostar 0,5
dollara að kaupa kynlíf með Eþíópísku barni og í Tælandi 20 dollara að
meðaltali. Í Amsterdam er verðið um 70 dollarar. Í okkar heimi eru
börn keypt og seld og konur misnotaðar fyrir smápeninga. Hinir
saklausu þjást. Þegar fæðst er inn í fátækt virðist engin
undankomuleið.

Þegar við komum aftur til Bandaríkjanna settum við saman útgáfuna "Sex
+ Money: A Global Search for Human Worth", sem er samansafn af myndum
og sögum úr ferðinni okkar. Sumar sögurnar vitna um þær þjáningar og
einangrun sem fátækt fæðir af sér þó að flestar snúi að raunveruleika
kynlífsþrælkunar.

Horfðu
Lestu
Vertu breytingin"
Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548283
Samtals gestir: 94105
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 16:21:02
Email