Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

05.12.2008 23:53

3. þjóðfundur á Kaffi Hljómalind


þjóðfundur 22. nóv.


FRÉTTATILKYNNING (tekið af facebook)



Haldinn verður "Þjóðfundur" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 6. desember 2008. kl. 13.00 til 15:00.

Fengist verður við kosningafyrikomulag í lýðræði.

Þessi tala:
Viðar Þorsteinsson, heimspekingur.
Kristján Guðlaugsson, sagnfræðingur og blaðamaður.

Þessi spila og syngja:
Elíney

Kynnir er Ellen Kristjánsdóttir, söngkona

Hvernig fara kosningar fram í lýðræði? Hvað er fulltrúalýðræði og hvað er beint lýðræði? Er það rétt að "meirihlutinn ræður"? Geta 32 manneskjur tekið einhliða ákvarðanir ef 31 er á móti? Geta menn breytt reglum lýðræðisins? Er lýðræði á Íslandi?
Félög og einkaklubbar sem kalla sig stjórnmálaflokkar hafa einokað aðkomu að kjötkötlunum í rúmlega hálfa öld. Klúbbarnir hafa tekið á sig ímynd viðurkenndra stofnana og látast hafa með landstjórnina að gera. Bera þarf hitt og þetta undir "fulltrúaráð", "miðstjórn" og fleira þ.h. áður en "réttkjörnir" Alþingismenn geta bryddað upp á málum eða tekið ákvarðanir á þingi. Framboðslistar klúbbanna einoka flóruna í Alþingikosningum og fá umbun fyrir að bjóða fram í öllum kjördæmum í formi uppbótaþingmanna. Þeir fá einnig greidda opinbera styrki í hlutfalli við útkomu úr kosningum. Stjórnmálaklúbbarnir hafa mikla fjármuni milli handanna í í átökum um vinsældir meðan á kosningabaráttu stendur. Peningarnir eru notaðir m.a. í auglýsingar til að auka kosningafylgi rétt eins og um tannkrem væri að ræða. Þrátt fyrir aðkomu þeirra að þinginu og landstjórninni er nánast ekkert eftirlit með fjármál klúbbanna og alls ekki gagnsætt hvaðan fjármunir þeirra koma, né til hvers gefendur ætlast af frambjóðendum komist þeir á þing. Það gefur auga leið að svona kerfi er ávísun á spillingu.
Til þess að breyta kosningakerfinu er þörf á nýjum grunnlögum. Hér fylgja nokkrar tillögur um atriði sem þarf að skoða þegar stjórnlagaþing kemur saman. Þetta er alls ekki tæmandi.

Tillögur frá Þjóðmálahópnum FLTL (Frá lýgræði til lýðræðis) um mikilvæg atriði við gerð nýrra grunnlaga fyrir Lýðræðislega lýðveldið Ísland.

Kjósa þarf stjórnlagaþing sem vinnur tillögur að nýjum grunnlögum.

Í grunnlögunum þurfa að vera, auk annars sem stjórnlagaþingið telur nauðsynlegt, eftirfarandi atriði:

  • Lýðræðislega Lýðveldið Ísland er fullveðja sjálfstætt ríki. Tilvist lýðveldisins byggist á virðingu fyrir öllum mönnum, friði, jafnrétti, frelsi og síauknum mannréttindum.
  • Á Íslandi er ekki her.
  • Allir sem íslenskt ríkisfang hafa bera sömu skyldur og hafa sömu réttindi.
  • Allir fullveðja ríkisborgarar landsins njóta kosningaréttar til jafns. Gæta skal þó að því að minnihlutarhópar og dreifðar byggðir eigi sér ávallt fulltrúa á Alþingi.
  • Allar embættismanneskjur ríkisvaldsins skulu valdar í beinum leynilegum kosningum sem haldnar eru með reglulegu millibili, til að tryggja ábyrgð, skilvirkni og einlægni.
  • Tryggja skal rétt allra til framboðs með sanngjörnum lágmarksskilyrðum. (ath! útiloka þarf ægivald flokkanna)
  • Löggjafarvald - framkvæmdarvald og dómsvald skal vera tryggilega aðgreint þannig að enginn geti valist í embætti í meira en einu þeirra þriggja samtímis.
  • Embættismanneskjur geta ekki valið aðrar embættismanneskjur nema með samþykki þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu.
  • Setja skal í lög (eða beint hér) sanngjörn skilyrði fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um málefni sem hana varða og ekki brjóta í bága við grunnlögin. Þar á meðal, stjórnar- og þingslit.
  • Kosið skal í beinni og sértækri þjóðaratkvæðagreiðslu um gildstöku grunnlaga sem og breytingar á þeim. Alþingi má gera tillögur að breytingum á grunnlögum.
  • Náttúruauðlindir Íslands á landi, i lofti og til sjávar ásamt nýtingarrétti á þeim eru ævarandi eign þjóðarinnar. Vernd og nýting þeirra ber ætíð að miðast við rétt komandi kynslóða til að taka við þeim óskemmdum.


Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548283
Samtals gestir: 94105
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 16:21:02
Email