20.11.2008 15:49
ÞJÓÐFUNDUR á laugardaginn kl 12:00
Haldinn verður "Þjóðfundur" í Kaffi Hljómalind
laugardaginn 22. nóvember 2008. kl. 12.00 til 14:00.
Fengist verður við lýðræðishugmyndina.
Þessi tala:
Haukur Már Helgason, ritstjóri NEI
Magnús Helgason, sagnfræðingur
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur
Anna Björk Einarsdóttir - kynnir Yfirlýsingu um
stofnun Nýs Lýðveldis.
Þessi spila og syngja:
Piknik (Steini Hjálmur og Sigga Eyþórs)
Elíney
Kynnir er Ellen Kristjánsdóttir, söngkona
Hvað er lýðræði? Hvert er eðli þess? Er lýðræði
aðeins hugsjón, nokkurs konar draumur um betri tíð? Eða er um raunverulegan
valkost að ræða? Hvernig verður stjórnarskrá til? Megum við sem þjóð skipa
okkar málum sjálf?
Óreiða, fégræðgi og spilling manna í
trúnaðarstöðum samfélagsins hefur undanfarið afhjúpast svo rækilega að enginn getur
lengur undan litið. Og enginn er ósnortinn. Valdaklíkur þjappast saman sem
aldrei fyrr og reyna að tryggja sér og sínum eilífa vist í sölum valdsins þar
sem óhóf, vellystingar og munaður eru fyrirmæli dagsins. Alþýða landsins skal
hneppt í þrældóm um þessa sömu eilífð. Henni er ætlað að vinna, hlýða og borga
brúsann. Henni verður heimilt, með hæfilegu millibili að ganga að kjörkössunum
og velja milli þeirra sem þegar hafa valið sig sjálfir til að stýra aðgengi að
bólgnum sjóðum auðvaldsins. Gjaldheimtumenn hafa til hagræðis safnað þessu á
einn stað. En þarf þetta að vera svona? Segir hver? Megum við kannski kjósa það
sem okkur sýnist? Þegar okkur sýnist.
Aðgerðahópur "Frá lýgræði til lýðræðis"
Kjósum okkur sjálf.



