Fréttir
18.11.2008
Námskeið í desember og janúar
Vandað og ítarlegt námskeið sem eykur skilning þinn á meðgöngu, fæðingu og
foreldrahlutverkinu. Áhersla er lögð á fræðslu í sambland við opnar umræður,
öndun, yoga og sjálfsstyrkingu. Hentar jafnt frumbyrjum sem fjölbyrjum.
Námskeiðið er opið og þú mætir því í þau skipti sem þú vilt.
- ·Upplýsingar og kennsla í
sjálfshjálp og náttúrulegum lausnum á meðgöngu, í fæðingu, við sængurlegu og
brjóstagjöf
- Öndun, slökun og líkamsbeiting
- Fræðsla um fæðingarferli þar
sem þarfir ykkar eru í fyrirrúmi
- Opnar umræður um allt sem viðkemur fæðingu og foreldrahlutverki
- Horft á afar fræðandi myndbönd
- Upplýsingar um stuðning í fæðingu, verkjastillingu, inngrip, fæðingarstaði, vatnsfæðingu, heimafæðingu o.s.fv.
- Fræðsla um tilfinningaþroska barnsins og tengslamyndun
- Brjóstagjöf og sængurlega
- Opið fyrir feður/maka dagana 9. og 16. des.
Námskeiðið er haldið í salnum í Kaffi Hljómalind, Laugavegi, dagana 25.nóv,
2.des, 9.des., 16.des, 6.jan., og 13.,jan frá klukkan 16-18.
Hvert skipti kostar 1500.
Nánari uppl. fást hjá Eydísi í síma 695 5685 eða email eydis@draumafaeding.net
Flettingar í dag: 197
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 1264
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 374491
Samtals gestir: 57445
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 08:41:27



