12.10.2008 12:53
Hrun Kapitalismanns - Prout
Góðan daginn
Það lítur allt út fyrir að efnahagurinn sé að hrynja og hugmyndakerfi nýfrjálshyggjunnar og kapitalismanns með.
Efnahagurinn á Íslandi hefur aldrei upplifað annað eins áfall og nú virðist hið sama að gerast allsstaðar annars staðar í heiminum. Í dag einkavæddi til að mynda breska ríkið tvö banka hjá sér. Fyrrverandi bankastjóri Landsbankanns Sigurjón Árnason sagði í Kastljósi fyrir nokkrum dögum að kerfið (nýfrjálshyggjan) væri ekki að virka og að "kapitalisminn er næstum því að falla": sjá hér
Nú er um að gera að leita að leiða til að byggja samfélagið okkar upp á nýjan leik og þá mögulega byggja það upp á öðrum hlutum en græðgi eins og frjálshyggjan virkar.
Valkostur við Nýfrjálshyggjuna sem verðugur er að skoða er hugmyndafræðin Progressive Utilization Theory eða PROUT.
Þar er lögð áhersla á efnahagslegt lýðræði þar sem notast er við ákveðna skiptingu í efnahagslífinu á milli samvinnurekinna fyrirtækja sem mynda stærsta hlutann, einkarekinna fyrirtækja sem eru litlu fyrirtækin og ríkisrekin fyrirtæki sem eru undirstöðu fyrirtækin í þjóðfélaginu.
Í kenningunni er hugað að jafnvægi á milli efnislegra, huglægra og andlegra þátta í samfélaginu sem er stærsti munurinn á við hinar kenningarnar þ.e komúnismann og kapitalisminn sem byggja allt sitt eingöngu á efnislega sviðinu.
Dæmi um fyrirtæki sem vinnur út frá kenningum Prout er kaffi Hljómalind þar sem lögð er meiri áherslu á fólkið en ekki gróðann. Við reynum að vinna sameiginlega að markmiðum okkar sem eru að hafa uppbyggileg og jákvæð áhrif á samfélagið í kringum okkur.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um prout á www.prout.org

Skrifað af Einari Indra
Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548283
Samtals gestir: 94105
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 16:21:02