Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Hvað vantar á Kaffi Hljómalind

 Croissant

 Fleiri Te

 Meiri mat

 Boost drykki

 Nýkreista safa


Sýna niðurstöður

Tenglar

Fréttir

10.10.2008

Fundur á Kaffi Hljómalind kl 16:00

Það verður haldin samkoma í baksal Hljómalinda kl 16:00 á morgunn Laugardag. Eftirfarandi fréttatilkynning er frá skipuleggjendum:

"Þessi samkoma er neyðarfundur þeirra sem ætla ekki að vera aðgerðalausir á þessum afdrifaríku tímum. Eitthvað þarf að gerast og nú er kominn tími til að Íslendingar snúi bökum saman og beiti sér fyrir friðsamlegum mótmælum til að grípa í taumana áður en við verðum endanlega þrælar skulda. Skulda af peningum sem við sáum aldrei!  Íslendingar skulda víst 25 milljónir á mann, ég veit ekki með þig en slíkri fjárhæð hef ég aldrei komið nálægt á allri minni ævi! Hvernig get ég skuldað einhverjum hana?

Það er alltof auðvelt að "chilla" bara og vona að þetta reddist. Reddum þessu fyrst og chillum síðan!

Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í umræðum um hvað sé hægt að gera til að takast á við ástandið eru meira en velkomnir á þennan fund, og takið þá með ykkur sem þið vitið að þrá breytingar líka! Ísland er nógu lítið til að hópur af hugrökku fólki með hugsjónir geti breytt stefnu allrar þjóðarinnar.

Mætið og verum bjartsýn, því það er alveg satt... þetta reddast! við þurfum bara að nenna að redda því. Þá er það ekkert mál.

Kaffi Hljómalind, laugardagur 11.október klukkan 4."

Skrifað 10.10.2008 kl. 16:10 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 251
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 394
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 375934
Samtals gestir: 57632
Tölur uppfærðar: 10.9.2010 09:46:41
Email