Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús

BÓKABÚÐIN HEIMSENDIR
Í KJALLARA HLJÓMALINDAR


Miðvikudagur
Ghettó Jóga
kl 18:00

Fimmtudagur
Yoga tími
kl 17:30
laugardagur 
Ghettó Jóga
kl 12:00
Sunnudagur
Fundir um
Heimsgöngu í
þágu friðar
kl 16:00





Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Tenglar

Fréttir

6.10.2008

Brjóstagjafavika

Góðan daginn

Nú er hin alþjóðlega brjóstagjafavika hafin. Á kaffi Hljómalind verður ljósmyndasýning í baksalnum á Kaffi Hljómalind. Hér kemur um vikuna og sýninguna af www.brjostagjafavika.org:

Alþjóðlega brjóstagjafavikan formlega sett og opnun ljósmyndasýningarinnar ,,Drekkutími"
eftir Guðrúnu Valdimarsdóttur áhugaljósmyndara á Kaffi Hljómalind.

Ljósmyndasýningin Drekkutími er sett upp í tilefni alþjóðlegu brjóstagjafavikunnar á Íslandi 6.-12.október. Sýningin er samstarfsverkefni Soffíu Bæringsdóttur, Aðalheiðar Atladóttur, Dagnýjar Óskar Ásgeirsdóttur og Guðrúnar Valdimarsdóttur en hún tók myndirnar og sá um vinnslu og uppsetningu sýningarinnar.

Á sýningunni eru alls um fjörtíu myndir af brjóstfæddum börnum. Átta myndir eru teknar í stúdíói í tilefni vikunnar en flestar myndir eru innsendar.

Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að vekja athygli á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Auk þess að beina sjónum að mikilvægi brjóstagjafar var ákveðið að minna á fegurð brjóstagjafar. Benda á að fegurðin býr í hversdagsleikanum og nándina sem myndast milli móður og barns.

Ljósmyndasýningin ,,drekkutími" er til að minna á hve einstakur tími brjóstagjafar er. Því um leið og brjóstagjöf er einstök og persónuleg er hún á sama tíma opin og snertir alla í samfélaginu.

Með ljósmyndasýningunni er brjóstagjöf sýnd eins og hún er frá degi til dags.




Skrifað 6.10.2008 kl. 20:56 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 260
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 421
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 102125
Samtals gestir: 19540
Tölur uppfærðar: 7.1.2009 14:31:13
Email