21.05.2008 22:45
Tvennir tónleikar á Föstudaginn
Næsta Föstudag, 23. Maí, verða tveir tónleikar á Kaffi Hljómalind.
Kl. 20:00 leikur hljómsveitin Funksveinar sem samanstendur af fimm 13 -14 ára strákum, sem spila funktónlist í anda Jagúar. Nánari upplýsingar og lög hér. Frítt inn.
Kl. 22:00 verða svo tónleikar til styrktar og stuðnings umhverfishreyfingarinnar Saving Iceland. Á tónleikunum koma fram hollenski söngvarinn Armand og kontrabassaleikarinn og sjóræninginn Captain Tobias Hume.
Armand, sem er þekktur sem hinn hollenski Bob Dylan, er mikill stuðningsmaður Saving Iceland og hefur þegar spilað nokkrum sinnum fyrir hreyfinguna í Evrópu. Þetta verða hans fyrstu tónleikar á Íslandi þar sem hann mun m.a. flytja þrjú ný lög sem hann samdi sérstaklega fyrir og um Saving Iceland.
Captain Tobias Hume er barrokk-hippi og kontrabassaleikari. Þegar hann er ekki upptekinn við að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands, skellir hann sér í sjóræningjabúninginn og syngur og spilar tónlist sem varla er hægt að lýsa með orðum... þú verður bara að koma og upplifa. Tobias hefur spilað í tveimur mótmælabúðum Saving Iceland; við Snæfell sumarið 2006 og á ráðstefnunni í Ölfussi sl. sumar.
Aðgangur er ókeypis en Tobias og Armand mæla með því að gestir styrki Saving Iceland með frjálsum framlögum.

Heimasíða Saving Iceland.
Skrifað af Andspyrna
Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548283
Samtals gestir: 94105
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 16:21:02