Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

15.05.2008 13:12

Te og kaffi einir með fair trade kaffi ?

Góðan og blessaðan
Í dag fimmtudag kom heilsíðugrein um að Te og kaffi væri byrjað með fair trade kaffi. Frábært hjá þeim enda ættu öll kaffihús að sjá sóma sinn í því að vera með einungis fair trade kaffi. Spurning hvort að fair trade kaffið sé serverað sem staðal kaffi á kaffihúsunum?
Svo skilst okkur að sé aðeins í Hámu, stúdentakaffihúsinu. Í Te og kaffi í Austurstræti er ekki hægt að fá fair trade kaffi, en sem komið er, vonandi verður fair trade kaffið þó staðalkaffi í framtíðinni hjá Te og kaffi, þrátt fyrir að svo sé alls ekki enn sem komið er.
Einnig kom fram í greininni að Te og kaffi væru einir með fair trade kaffi og þarfnast það leiðréttingar hér.

Kaffi Hljómalind hefur einungis boðið upp á fair trade og lífrænt vottað kaffi frá fyrsta degi eða frá því í janúar 2005 þegar við opnuðum.

Einnig höfum við lagt áherslu á að bjóða gestum og gangandi upp á fair trade og lífrænt vottað kaffi á sama verði og hin kaffihúsin selja venjulegt óvottað kaffi. 
Það er fair trade..

Kaffi er í öðru sæti yfir vörur sem er mest verslað með í heiminum og hefur því gríðarleg áhrif hvaða verða við þróuðu löndin borgum fyrir það. Heimsmarkaðsverð er oftar en ekki það lágt að kaffibændur eru í sára fátækt við að rækta það.


Við hvetjum öll kaffihús til þess að taka sem fyrst upp þá stefnu að bjóða upp á fair trade kaffi sem staðal kaffi þegar keypt er kaffi, ekki bara að bjóða upp á það í sérverslun.

Góð mynd um kaffiverslun í heiminum heitir black gold, sjá hér


    
Flettingar í dag: 129
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548191
Samtals gestir: 94100
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 14:08:45
Email