14.04.2008 18:09
Andspyrnubíó Miðvikudaginn 16. Apríl - Angry Brigade
Andspyrna
stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á
róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu.
Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.
Núna á Miðvikudaginn, 16. Apríl sýnum við mynd um The Angry Brigade sem
var hópur anarkista sem stóð fyrir röð sprenginga á Bretlandi á árunum
1970 - 1972. Meðal skotmarka hópsins voru bankar, sendiráð og heimili
þingmanna. Meðal meðlima hópsins var Stuart Christie sem áður hafði
verið handtekinn á Spáni fyrir að reyna að myrða Franco. Aðgerðum
hópsins lauk með einum lengstu glæpa réttarhöldum (criminal trials) í
sögu Englands.
Nánar um The Angry Brigade hér.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.
Nánar um The Angry Brigade hér.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.
Skrifað af Andspyrna
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548198
Samtals gestir: 94101
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 14:34:36



