Fréttir
12.3.2008
AndspyrnuBíó alla miðvikudaga - A place called Chiapas
Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.
Miðvikudaginn 12. mars verða sýnd myndin A Place Called Chiapas. Myndin fjallar um baráttu Frelsishreyfingar Zapatista (EZLN) í Mexíkó og farið er yfir sögu hennar, tilgang og aðgerðir, en kaffið sem selt er á Hljómalind er einmitt Zapatista kaffi og er selt til stuðnings hreyfingarinnar.
Eftir á verður spjall og auðvitað boðið upp á Zapatista kaffi.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er enginn aðgangseyrirFlettingar í dag: 298
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 394
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 375981
Samtals gestir: 57634
Tölur uppfærðar: 10.9.2010 10:32:40



