Færslur: 2010 Mars
29.03.2010 22:17
Utanaðkomandi fréttatikynning-Róstur
Fréttatilkynning
Fimmtudagurinn 4. mars 2010
Róstur: nýr óháður prentmiðill lítur dagsins ljós
Í dag kemur út fyrsta tölublað nýs og óháðs prentmiðils sem ber nafnið
Róstur. Blaðinu verður dreift um land allt og næstu daga verðum við, sem
að því komum, sýnileg á höfuðborgarsvæðinu við dreifingu blaðsins. Þau sem
hafa áhuga á áskrift að Róstum eða vilja taka þátt í að dreifa því geta
haft samband við askrift(at)rostur.org
Allt frá því að efnahagur Íslands tók dýfu fyrir rúmu ári síðan hefur
almenningur kallað eftir auknu lýðræði og betra stjórnskipulagi. Á meðan
opinberri umræðu er hins vegar stýrt af örfáum fjölmiðlum sem flestir eru
í eigu sömu fyrirtækjanna mun það ekki verða raunin. Eins og gefur að
skilja, hefur eignarhald fjölmiðlanna að sjálfsögðu mikil áhrif á hvernig
fréttaflutningi er háttað. Auglýsingar hafa þó ekki síður áhrif, því varla
vilja blaðamenn bíta í höndina sem fæðir þá með því að fjalla um
auglýsendur á gagnrýninn hátt.
Hér á landi eru flestir fjölmiðlar ýmist dulin áróðstæki eigenda sinna eða
í eigu hlutafélaga sem krefjast gróða umfram góðrar fréttamennsku og því
reynist fjölmiðlum það ómögulegt að gagnrýna fyrirtæki sem auglýsa í
blöðum þeirra. Fjölmiðlar sem ekki þora að vera með gagnrýna fréttamennsku
gagnvart stórfyrirtækjum og stórum auglýsendum eru ekki einungis vandamál
hér á landi heldur víðar um heimsbyggðina. Við lifum nú orðið í heimi þar
sem velta margra stórfyrirtækja er mun meiri en flestra þjóðríkja. Slíkum
fjármunum fylgja gríðarleg völd, ekki bara til þess að kaupa löggjöf hjá
stjórnvöldum eins og víða hefur átt sér stað, heldur líka til þess að
kaupa almenningsálit sem bæði er gert með áróðri hagsmunaaðilum í vil, en
líka með því að forðast að gagnrýna þá.
Tilgangur Rósta er að vera mótvægi við þá fjölmiðla sem bundnir eru á
klafa fjármagnseigenda. Ekki er ætlunin að blaðið verði rekið með hagnaði
og mun allur afgangur af rekstri þess renna til góðgerðarstarfs. Róstur
munu ekki reknar með auglýsingatekjum, heldur með frjálsum framlögum
lesenda. Til þess að þetta gangi upp mun öllum kostnaði vera haldið í
lágmarki og öll vinna ólaunuð. Trúin á að þetta takist stafar af trausti á
þvi að almenningur sé tilbúinn að láta eitthvað af hendi rakna í þeim
tilgangi að viðhalda opinni og upplýstri fjölmiðlaumræðu hér á landi.
Þessi leið er farin til þess að koma í veg fyrir það að greiðslur frá
hagsmunaaðilum hafi áhrif á það sem kemur fram í blaðinu. Slíkt getur átt
sér stað í formi sjálfsritskoðunar af hræðslu við að fæla burt þá sem
kosta blaðið. Því hafa Róstur einungis skyldum að gegna gagnvart lesendum
sínum. Fari hagsmunir lesenda ekki saman við hagsmuni fjármagnseigenda mun
blaðið því einungis reka erindi hinna fyrrnefndu.
Róstum er ætlað að sýna fram á að hægt sé að leggja af mörkum til
samfélagsins án þess að fá fyrir það þóknun í formi beinharðra peninga. Ef
fólki er alvara með því að ætla sér að raunverulega breyta einhverju í
samfélaginu er fyrsta skrefið að breyta þeirri hugmyndafræði sem ríkt
hefur. Sú hugmyndafræði snerist um það að hámarka gróða og allt sem ekki
snerist um arðsemi var dæmt sem einskis vert. Þrátt fyrir efnahagshrun og
ákall um samfélagsbreytingu hefur lítið breyst í raun. Svo virðist sem
ríkjandi hugmyndafræði snúist nú um það að lágmarka tapið og stefna aftur
í sömu átt og áður, en fara kannski aðeins hægar i þetta skiptið. Ef við
viljum raunverulegar breytingar hlýtur það að fela í sér algjöra
endurskoðun þeirrar hugmyndafræði sem við samþykkjum og viljum lifa eftir.
Með áherslu á samvinnu og afneitun gróðahugsjónar vonast Róstur til þess
að verða liður í að stuðla að slíkum breytingum.
Um útgáfu blaðsins sér Áhugamannafélag um breytta tíma og í ritstjórn
fyrsta tölublaðs sitja þau Anna Þórsdóttir, Helga Katrín Tryggvadóttir og
Jón Bjarki Magnússon. Allar nánari upplýsingar um Róstur má finna á
vefsíðu okkar www.rostur.org eða með því að hafa samband við
rostur(at)rostur.org

Skrifað af Kaffi Hljómalind
Flettingar í dag: 219
Gestir í dag: 38
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 548281
Samtals gestir: 94104
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 15:38:27