Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Færslur: 2009 Ágúst

26.08.2009 22:07

Leikhús á Hljómalind

Enskt hádegisleikhús mun standa yfir í tvo daga á Kaffi Hljómalind nú
í byrjun september. Er þetta í fyrsta skipti sem leikritið Elskendur -
Sigurvegarar eftir Brian Friel er sýnt hér á landi. Leikendur eru
Melkorka Óskarsdóttir og Adam Slynn sem bæði útskrifuðust þau úr
enska leiklistarskólanum LAMDA á síðasta ári. Verkið fylgir ungu írsku
pari á fallegum sumardegi árið 1966 þegar aðeins fjórir dagar eru til
stefnu fyrir lokapróf. Framtíðin er þeim einkar hugleikin þar sem þau
eiga von á barni og eru um það bil að fara að gifta sig. Leikstjóri er
Joseph Blatchley.

Sýningin fer fram á ensku og er tekur um 30 mínútur í flutningi svo að
það hentar vel að grípa sér kaffibolla eða samloku á Kaffi Hljómalind
og njóta ókeypis leikhúss.

Sýningar verða kl. 12.30 föstudaginn 4. og laugardaginn 5. september.

22.08.2009 11:12

Kaffi Hljómalind hefur breyst í fjallkonuna

Kristín Dahlstedt var fyrsta konan sem rak veitingahús; Fjallkonuna, Laugavegi 23, í upphafi 20. aldar á Íslandi. Kristín var kvenskörungur mikill og myndaðist einstök stemmning á Fjallkonunni. Minning Kristínar verður heiðruð með því að endurvekja Fjallkonuna. Boðið verður upp á þjóðlegan mat og lifandi tónlist.

13.08.2009 14:42

Concert on the 15th


 
Alefli spilar 15 ágúst kl 19:00.Meðlimir eru Jakob(piano,söngur,gitar),halli(lead gitar),Bjarki(trommur,slagverk),þórunn(sello),dagur(bassi,söngur). og
við spilum folk rokk/metal og texta sem fjalla um vikinga tímana og svoleiðis svona semi viking metal. Hafa spilað í 1 ár.

Sjá nánar
(www.myspace.com/alefli)
 

09.08.2009 21:16

Tími til að stofna samvinnufélög

Er ekki kominn tími til að auka vægi samvinnureksturs í íslensku efnahagslífi. Kaupfélögin gerðu gott á sínum tíma áður en spilling og áhættufjársækni eyðilögðu þau. Samvinnurekin fyrirtæki byggja á samvinnu í stað undirgefni. Þar vinna allir undir sama hatti (þ.e síns eigin) og skipuleggja fyrirtækið saman í stað þess að taka við fyrirskipunum jafnvel frá stjórn sem hefur aðsetur í öðru landi en starfsfólkið sjálft. Þannig stuðlar samvinnurekstur að auknum blóma í nærumhverfi fyrirtækisins.

Íslensku lögin um samvinnufélög eru látin fljóta hér með. Einnig er vert að skoða önnur rekstrarform sem gætu hentað betur eins og einkahlutafélagslögin.

Lög um samvinnufélög.pdf

    Flettingar í dag: 125
    Gestir í dag: 34
    Flettingar í gær: 203
    Gestir í gær: 50
    Samtals flettingar: 548187
    Samtals gestir: 94100
    Tölur uppfærðar: 5.2.2012 13:25:11
    Email