N/A Blog|BlogsInYearMonth: 2009 N/A Blog|Month_3
20.03.2009 13:05
Hvað er Kaffi Hljómalind?
Kaffi Hljómalind er áfengis- og vímuefnalaust kaffihús og menningarmiðstöð. Það er samvinnurekið, sem þýðir að það er ekki rekið í hagnaðarskyni heldur með það að markmiði að auka félagsauð og hafa jákvæð, uppbyggileg áhrif á samfélagið. Allur umframágóði eftir fastan kostnað rennur beint inn í starfsemina fyrir utan lítinn hluta sem rennur í góðgerðarmál.
Bakatil í Hljómalind er fjölnota salur; félagsrými, sem er opið allri starfsemi, endurgjaldslaust. Með því að bjóða þetta rými vill Kaffi Hljómalind leggja öllu góðu málefni lið og leggja af mörkum til grasrótarhópa sem hafa lítið fé milli handanna. Hljómalind skaffar rýmið - hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur almennings sér um restina. Þetta fyrirkomulag hefur gefið gífurlega góða raun, Hljómalind er dínamískur staður í stöðugum vexti.
Allar götur frá opnun eru viðburðir Hljómalindar að meðaltali einn á dag. Má þar nefna jóga- og danstíma, ljóðaupplestur, saumaklúbba, hráfæðisnámskeið, fyrirlestra af ýmsu tagi, kvikmynda-, dans- og myndlistarsýningar, grasrótarfundi, stofnun ýmissa félaga s.s. fair trade félag Íslands og vinir Tíbets, málstofur, ráðstefnur, námskeið, tónleika, pabbamorgna, pólitískar umræður o.s.frv. o.s.frv. Listinn er endalaus.
Hljómalind er löngu þekkt fyrir lifandi tónlist, en þar hafa ótal hljómsveitir spilað. Allur tónlistarskalinn hefur hljómað þar; harðkjarni, djass, klassík, popp, raftónlist, þjóðlagatónlist, rokk o.s.frv. Grasrótin hefur mikið spilað á Hljómalind og er sérstök áhersla lögð á að halda dyrunum opnum fyrir ungu kynslóðinni, þ.e. grunn- og menntaskólanemum, sem hefur ekki í mörg hús að venda sökum aldurstakmarks.
Kaffi Hljómalind er rólegur og afslappaður staður þar sem hægt er að setjast í mjúkan hægindastól og lesa fróðlegar bækur um ýmis málefni. Ávallt hefur verið hægt að kaupa góðar bækur á Hljómalind en nú hefur bæst við bókasafn sem gerir fólki kleift að fá lánaða bók heim, endurgjaldslaust.
Á Kaffi Hljómalind eru eingöngu seldar lífrænar veitingar og "fair trade" þegar því er viðkomið. Við flytjum kaffið okkar inn sjálf, beint frá frelsishreyfingu Sapatista í Mexíkó. Við sem rekum Hljómalind viljum að allir hafi þann valkost að neyta lífrænna veitingar, án þess að þurfa að tæma budduna alveg og því eru verðin okkar svipuð og verð annara kaffihúsa.
Segja má að Kaffi Hljómalind sé sambærileg við félagsmiðstöð, þar sem selt er "kaffi og meðí" til að eiga fyrir leigunni og öðrum rekstrarkostnaði.
Written by Kaffi Hljómalind
Today's page views: 219
Today's unique visitors: 38
Yesterday's page views: 203
Yesterday's unique visitors: 50
Total page views: 548281
Total unique visitors: 94104
Updated numbers: 5.2.2012 15:38:27



