Fréttir
23.2.2009
Slátur dúndur, Föstudag !!
Hrá sláturverk. Ósoðin, lauflétt og níðþung músík.
Næstkomandi föstudagskvöld 27.febrúar 2009 halda S.L.Á.T.U.R.-samtökin
tónleika á Kaffihúsinu Hljómalind kl.20.00. Þessir tónleikar eru númer tvö
í röð viðburða undir heitinu sláturdúndur. Sláturdúndrin eru haldin
mánaðarlega, seinasta föstudag í hverjum mánuði.
Á sláturdúndri eru einungis frumflutt ný listrænt ágeng tónverk. Listrænt
ágeng tónskáld umhverfis Reykjavík koma því saman ásamt listrænt ágengum
hljóðfæraleikurum sem í sumum tilfellum eru tónskáldin sjálf. Í þessari
mánaðarlegu seríu er ekki gert út á umgjörð og formlegheit heldur listrænt
ágengi í sinni hreinustu mynd.
S.L.Á.T.U.R. eru Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík.
Markmið samtakanna er að stuðla að listrænu ágengi umhverfis Reykjavík og
víðar. Samtökin standa reglulega fyrir ýmsum viðburðum svo sem
sumarsólstöðutónleikum, nýjárstónleikum, keppninni um keppinn,
utanlandsferðum sem kynna listrænt ágengi og nú sláturdúndur. Einnig er að
styttast í útgáfu af kynningargeisladisk samtakanna. Þá munu samtökin
halda tónlistarhátíð síðsumars.
16.2.2009
Borgarafundur ungmenna í kvöld !
Mánudaginn 16. febrúar ætlar Reykjavíkurráð ungmenna að halda Borgarafund fyrir ungmenni á Kaffi Hljómalind við Laugaveg 23. Fundurinn hefst kl. 18:00 og stendur til 21:00.
Þarna kemur saman hluti af framtíð íslensks samfélags og ræðir ástandið í landinu. Þetta er sú kynslóð sem mun fá að taka afleiðingum þeirra aðgerða sem farið verður í, í kjölfar þess sem dunið hefur á þjóðfélaginu. Því er mikilvægt að sjónarmið þessa hóps komist á framfæri.
Því hvetjum við þig til þess að mæta á fundinn.
9.2.2009
PÖNK TÓNLEIKAR TIL STYRKTAR NÝ-UNG !!!
Kaffi Hljómalind. Laugardagurinn. 14.Febrúar kl 18:00
Buxnaskjónar - http://www.myspace.com/buxnaskjonar
eiturhresst pönk beint úr Eyjafjarðarsveit
Morðingjarnir - http://www.myspace.com/mordingjarnir
hratt og skemmtilegt pönk
Deathmetal Supersquad - http://www.com/thedeathmetalsupersquad
folkpunk hetjur Íslands
Logn - http://www.myspace.com/lognmusic
nýjasta bandið á klakanum, grindcoremayhem! ungir guttar að spila sýna
fyrstu tónleika!
Tónleikarnir eru til styrktar Ný-Ung, Ungliðahreyfingu Sjálfsbjargar
500kr - ef þú átt ekki pening, þá geturðu borgað minna.
6.2.2009
8. þjóðfundurinn á morgunn laugardag!!
8. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 7. febrúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.
Þessi tala:
Goddur (Guðmundur Oddur Magnússon) talar um táknmyndir byltingarástandsins.
Árni Daníel Júlíusson sagnfæðingur talar um nauðsyn byltingarinnar.
Þessi skemmtir: Erpur.
Þessi stjórnar fundinum: Ellen Kristjánsdóttir söngkona.
Hvernig skapaðist þetta byltingarástand? Hvernig virkjum við byltinguna? Hvaða táknmyndir verðar til í byltingu - hverju lýsa þær og til hvers? Hvað er það sem fóðrar byltinguna?
Fólk er hvatt til þess að koma og hittast og ræða málin eins og lýðræði gerir ráð fyrir.
Hvernig getur þjóð varpað af sér oki valdaklíku sem hefur skapað og umbreytt stjórnarskrá sem tryggir áframhaldandi völd þeirra. Allar manneskjur velkomnar. Aðgangur endurgjaldslaus og veitingarnar frábærar.




