N/A Blog|BlogsInYearMonth: 2009 N/A Blog|Month_1
30.01.2009 23:43
7. .þjóðfundurinn á Kaffi Hljómalind laugardag kl 13-15

FRÉTTATILKYNNING
Þessi tala:
Egill Helgason blaðamaður og Helga Vala Helgadóttir laganemi.
Þessi syngja:
Pikknikk
Þessi stjórnar fundinum:
Ellen Kristjánsdóttir söngkona.
7. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 31. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.
Hvernig á stjórnlagaþingið að vera og starfa. Hvernig veljum við fulltrúa á það? Hvernig skipuleggjum við kosningar til stjórnlagaþings. Verður hægt að kjósa til stjórnlagaþings jafnhliða þingkosningum. Er ekki tilvalið að nýta þingkosningar til að kjósa um fleiri atriði sem þjóðin þarf að segja skoðun sína á.
Fólk er hvatt til þess að koma og hittast og ræða málin eins og lýðræði gerir ráð fyrir.
Hvernig gera menn grunnlög? Hvað er stjórnlagaþing og hvernig má stofna til stjórnlagaþings án aðkomu valdaklíkunnar og jafnvel í andstöðu við hana? Er von á lýðræði á Íslandi?
Hvernig getur þjóð varpað af sér oki valdaklíku sem hefur skapað og umbreytt stjórnarskrá sem tryggir áframhaldandi völd þeirra. Allar manneskjur velkomnar. Aðgangur endurgjaldslaus og veitingarnar frábærar.
Framboðslistar klúbbanna einoka flóruna í Alþingikosningum og fá umbun fyrir að bjóða fram í öllum kjördæmum í formi uppbótaþingmanna. Þeir fá einnig greidda opinbera styrki í hlutfalli við útkomu úr kosningum. Stjórnmálaklúbbarnir hafa mikla fjármuni milli handanna í í átökum um vinsældir meðan á kosningabaráttu stendur. Peningarnir eru notaðir m.a. í auglýsingar til að auka kosningafylgi rétt eins og um tannkrem væri að ræða. Þrátt fyrir aðkomu þeirra að þinginu og landstjórninni er nánast ekkert eftirlit með fjármál klúbbanna og alls ekki gagnsætt hvaðan fjármunir þeirra koma, né til hvers gefendur ætlast af frambjóðendum komist þeir á þing. Það gefur auga leið að svona kerfi er ávísun á spillingu.
29.01.2009 22:28
Pabbamorgnar alla miðvikudaga 10-12
Pabbamorgnar á Kaffi Hljómalind alla miðvikudag frá 10-12
"Þetta er hugmynd sem éghef "gengið með" í nokkurn tíma, og ég er sumsé að hugsa um að einu sinni í viku verði það fastur liður að pabbar geti komið með börnin sín, hist ospjallað og deilt sinni reynslu af umönnun barna sinna. Ýmislegt hefur breyst á undanförnum árum sérstaklega eftir að fæðingarorlof feðra fór að festa sig í sessi, en samt hefur mér þótt vanta að e-r menning skapist í kringum þennan reynsluheim, á sama hátt og þróast hefur meðalmæðra. Því sé ég fyrirbæri eins og Pabbamorgna vera ágæta leið til að styðja við þá þróun. Eins og mömmumorgnar þá er þetta einkum hugsað fyrir karla í fæðingarorlofi sem og heimavinnandi húsfeður, en þó væri þetta í raun öllum
24.01.2009 20:54
Update
Hljómalind
16.00 - 16.30 Heiða Dóra
16.30 - 17.00 Daníel Jónsson
17.00 - 17.30 Stefán Örn
17.30 - 18.00 Leynigestur
18.00 - 18.30 Pása - matur
18.30 - 19.00 Hlynur Valsson
19.00 - 19.30 Seiðlæti
19.30 - 20.00 Mysterious Marta
Sunnudagur
Hljómalind
16.00 - 16.30 Árstíðir
16.30 - 17.00 Helgi Valur
17.00 - 17.30 Markús (Af Skátafrægð)
17.30 - 18.00 Marlon Pollock
18.00 - 18.30 Pása - matur
18.30 - 19.00 Sverrir Norland
19.00 - 19.30 Kristín Bergsdóttir
19.30 - 20.00 Böðvar Reynis og Co
22.01.2009 10:11
ALDREI FÓR ÉG Á REX, MUSIC FESTIVAL !
"Undercover Music Lovers á Íslandi standa á ný fyrir stórskemmtilegri
tónlistarhátíð á Café Rósenberg, Kaffi Hljómalind og Nýlenduvöruverslun
Hemma og Valda helgina 23. til 25. janúar nk.....Í þetta sinn er yfirskrift hátíðarinnar: Aldrei fór ég á REX í tilefni af hressilegum tíðindum í menningarlífi og efnahagslífi þjóðarinnar. Við fögnum hruni frjálshyggjunnar og upprisu mannhyggjunnar. Endurhæfðir Góðærisspaðar eru velkomnir ef þeir hegða sér vel og eru tilbúnir að knúsa og vera knúsaðir."
LAUGARDAGUR
Hljómalind
16.00 - 16.30 Heiða Dóra
16.30 - 17.00 Daníel Jónsson
17.30 - 18.00 Binni P
18.30 - 19.00 Pása - matur
19.00 - 19.30 Seiðlæti
19.30 - 20.00 Sverrir Norland
SUNNUDAGUR
Hljómalind
16.00 - 16.30 Árstíðir
16.30 - 17.00 Helgi Valur
17.30 - 18.00 Marlon Pollock
18.30 - 19.00 Pása - matur
19.00 - 19.30 Kristín Bergsdóttir
19.30 - 20.00 Böðvar Reynis og Co
22.01.2009 10:10
6. Þjóðfundur á Kaffi Hljómalind
6. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 24. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.
Þessi tala:
Katrín Oddsdóttir laganemi og Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur.
Þessi syngur:
Erpur Eyvindarson
Þessi stjórnar fundinum:
Ellen Kristjánsdóttir söngkona
20.01.2009 23:05
6. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 24. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00..
6. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 24. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00..
Hvernig skipuleggjum við kosningar til stjórnlagaþings.
Fólk er hvatt til þess að koma og hittast og ræða málin eins og lýðræði gerir ráð fyrir.
Hvernig gera menn grunnlög? Hvað er stjórnlagaþing og hverni má stofna til stjórnlagaþings án aðkomu valdaklíkunnar og jafnvel í andstöðu við hana? Er von á lýðræði á Íslandi?
Hvernig getur þjóð varpað af sér oki valdaklíku sem hefur skapað og umbreytt stjórnarskrá sem tryggir áframhaldandi völd þeirra. Allar manneskjur velkomnar. Aðgangur endurgjaldslaus og veitingarnar frábærar.
Framboðslistar klúbbanna einoka flóruna í Alþingikosningum og fá umbun fyrir að bjóða fram í öllum kjördæmum í formi uppbótaþingmanna. Þeir fá einnig greidda opinbera styrki í hlutfalli við útkomu úr kosningum. Stjórnmálaklúbbarnir hafa mikla fjármuni milli handanna í í átökum um vinsældir meðan á kosningabaráttu stendur. Peningarnir eru notaðir m.a. í auglýsingar til að auka kosningafylgi rétt eins og um tannkrem væri að ræða. Þrátt fyrir aðkomu þeirra að þinginu og landstjórninni er nánast ekkert eftirlit með fjármál klúbbanna og alls ekki gagnsætt hvaðan fjármunir þeirra koma, né til hvers gefendur ætlast af frambjóðendum komist þeir á þing. Það gefur auga leið að svona kerfi er ávísun á spillingu.
Til þess að breyta kosningakerfinu er þörf á nýjum grunnlögum. Hér fylgja nokkrar tillögur um atriði sem þarf að skoða þegar stjórnlagaþing kemur saman. Þetta er alls ekki tæmandi.
Tillögur frá Þjóðmálahópnum FLTL (Frá lýgræði til lýðræðis) um mikilvæg atriði við gerð nýrra grunnlaga fyrir Lýðræðislega lýðveldið Ísland.
Kjósa þarf stjórnlagaþing sem vinnur tillögur að nýjum grunnlögum.
Í grunnlögunum þurfa að vera, auk annars sem stjórnlagaþingið telur nauðsynlegt, eftirfarandi atriði:
Lýðræðislega Lýðveldið Ísland er fullveðja sjálfstætt ríki. Tilvist lýðveldisins byggist á virðingu fyrir öllum mönnum, friði, jafnrétti, frelsi og síauknum mannréttindum.
Á Íslandi er ekki her.
Allir sem íslenskt ríkisfang hafa bera sömu skyldur og hafa sömu réttindi..
Allir fullveðja ríkisborgarar landsins njóta kosningaréttar til jafns. Gæta skal þó að því að minnihlutarhópar og dreifðar byggðir eigi sér ávallt fulltrúa á Alþingi.
Allar embættismanneskjur ríkisvaldsins skulu valdar í beinum leynilegum kosningum sem haldnar eru með reglulegu millibili, til að tryggja ábyrgð, skilvirkni og einlægni.
Tryggja skal rétt allra til framboðs með sanngjörnum lágmarksskilyrðum. (ath! útiloka þarf ægivald flokkanna)
Löggjafarvald - framkvæmdarvald og dómsvald skal vera tryggilega aðgreint þannig að enginn geti valist í embætti í meira en einu þeirra þriggja samtímis.
Embættismanneskjur geta ekki valið aðrar embættismanneskjur nema með samþykki þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu.
Setja skal í lög (eða beint hér) sanngjörn skilyrði fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um málefni sem hana varða og ekki brjóta í bága við grunnlögin. Þar á meðal, stjórnar- og þingslit.
Kosið skal í beinni og sértækri þjóðaratkvæðagreiðslu um gildstöku grunnlaga sem og breytingar á þeim. Alþingi má gera tillögur að breytingum á grunnlögum.
Náttúruauðlindir Íslands á landi, i lofti og til sjávar ásamt nýtingarrétti á þeim eru ævarandi eign þjóðarinnar. Vernd og nýting þeirra ber ætíð að miðast við rétt komandi kynslóða til að taka við þeim óskemmdum..
15.01.2009 15:07
Spjall um anarkisma
Gott fólkÉg ætla að bjóða anarkistum og áhugafólki um anarkisma til spjalls í
bakrými kaffi Hljómalindar þriðjudaginn 20.1 klukkan 18.
Set þetta upp eins og þegar mér hefur verið boðið að vera með
fyrirlestra í stjórnmálafræði MH eða Kvennó: Ég spjalla lauslega um
grunnhugmyndir og gagnrýni anarkista um samfélag og rekstur í ca. 20
mín og svo hefjast umræður.
Allt áhugafólk velkomið.
Donation box á staðnum til að borga leigu af félagsrýminu.
Siggi Pönk
09.01.2009 23:11
Ótrúlega áhugaverð ljósmyndasýning sett upp í félagsrýminu
"Fimmtudagskvöldið 8. Janúar kl. 20:00 verður ljósmyndasýning og
kynning á verkefninu:
Kynlíf + peningar
Leit að virði mannlífs
Á undanförnu ári hafa vinirnir Tim (frá Bandaríkjunum) og Jeong (frá
Suður-Kóreu) ferðast um gjörvallan þriðja heiminn, tekið myndir og
fangað málefni á borð við mansal og kynlífsþrælkun.
Reynslu sinni lýsa þeir á eftirfarandi hátt:
Í fyrstu virtist upplifunin æði misjöfn, jafnvel handahófskennd. Hins
vegar, þegar leið á ferðalagið fórum við að taka eftir rauðum þræði
sem tengdi saman ferðirnar okkar. Í hverju einasta landi sem við
heimsóttum (alls tuttugu talsins) heyrðum við sársaukafullar sögur af
mannlegri þjáningu í skugga hungurs, sjúkdóma og einmanaleika.
En það var meira. Við sáum flett af enn ljótari fyrirbærum á þeim
stöðum sem við heimsóttum; mansali og kynlífsþrælkun. Það kostar 0,5
dollara að kaupa kynlíf með Eþíópísku barni og í Tælandi 20 dollara að
meðaltali. Í Amsterdam er verðið um 70 dollarar. Í okkar heimi eru
börn keypt og seld og konur misnotaðar fyrir smápeninga. Hinir
saklausu þjást. Þegar fæðst er inn í fátækt virðist engin
undankomuleið.
Þegar við komum aftur til Bandaríkjanna settum við saman útgáfuna "Sex
+ Money: A Global Search for Human Worth", sem er samansafn af myndum
og sögum úr ferðinni okkar. Sumar sögurnar vitna um þær þjáningar og
einangrun sem fátækt fæðir af sér þó að flestar snúi að raunveruleika
kynlífsþrælkunar.
Horfðu
Lestu
Vertu breytingin"
09.01.2009 18:48
Brotist inná Hljómalindina:(
Stolið var 150.000 krónum sem er ákaflega erfitt fyrir reksturinn að þessu sinni, einnig var tekið hunang og talsvert af súkkulaði ásamt 4 nýkeyptum micum og mixer. Þjófarnir brutu einnig upp ólæsta eldvarnarhurð :)
Nú hefur verið eytt enn meiri peningum í að tryggja Hljómalind með miklum þjófavörnum og öðrum ráðstöfunum en engin var þó tryggingin.
Spurning hvort að þetta hafi verið útrásarvíkingar ?
En það þýðir ekkert að gráta Björn bónda, hann er dauður !



