Fréttir
30.1.2009
7. .þjóðfundurinn á Kaffi Hljómalind laugardag kl 13-15

FRÉTTATILKYNNING
Þessi tala:
Egill Helgason blaðamaður og Helga Vala Helgadóttir laganemi.
Þessi syngja:
Pikknikk
Þessi stjórnar fundinum:
Ellen Kristjánsdóttir söngkona.
7. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 31. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.
Hvernig á stjórnlagaþingið að vera og starfa. Hvernig veljum við fulltrúa á það? Hvernig skipuleggjum við kosningar til stjórnlagaþings. Verður hægt að kjósa til stjórnlagaþings jafnhliða þingkosningum. Er ekki tilvalið að nýta þingkosningar til að kjósa um fleiri atriði sem þjóðin þarf að segja skoðun sína á.
Fólk er hvatt til þess að koma og hittast og ræða málin eins og lýðræði gerir ráð fyrir.
Hvernig gera menn grunnlög? Hvað er stjórnlagaþing og hvernig má stofna til stjórnlagaþings án aðkomu valdaklíkunnar og jafnvel í andstöðu við hana? Er von á lýðræði á Íslandi?
Hvernig getur þjóð varpað af sér oki valdaklíku sem hefur skapað og umbreytt stjórnarskrá sem tryggir áframhaldandi völd þeirra. Allar manneskjur velkomnar. Aðgangur endurgjaldslaus og veitingarnar frábærar.
Framboðslistar klúbbanna einoka flóruna í Alþingikosningum og fá umbun fyrir að bjóða fram í öllum kjördæmum í formi uppbótaþingmanna. Þeir fá einnig greidda opinbera styrki í hlutfalli við útkomu úr kosningum. Stjórnmálaklúbbarnir hafa mikla fjármuni milli handanna í í átökum um vinsældir meðan á kosningabaráttu stendur. Peningarnir eru notaðir m.a. í auglýsingar til að auka kosningafylgi rétt eins og um tannkrem væri að ræða. Þrátt fyrir aðkomu þeirra að þinginu og landstjórninni er nánast ekkert eftirlit með fjármál klúbbanna og alls ekki gagnsætt hvaðan fjármunir þeirra koma, né til hvers gefendur ætlast af frambjóðendum komist þeir á þing. Það gefur auga leið að svona kerfi er ávísun á spillingu.
29.1.2009
Pabbamorgnar alla miðvikudaga 10-12
Pabbamorgnar á Kaffi Hljómalind alla miðvikudag frá 10-12
"Þetta er hugmynd sem éghef "gengið með" í nokkurn tíma, og ég er sumsé að hugsa um að einu sinni í viku verði það fastur liður að pabbar geti komið með börnin sín, hist ospjallað og deilt sinni reynslu af umönnun barna sinna. Ýmislegt hefur breyst á undanförnum árum sérstaklega eftir að fæðingarorlof feðra fór að festa sig í sessi, en samt hefur mér þótt vanta að e-r menning skapist í kringum þennan reynsluheim, á sama hátt og þróast hefur meðalmæðra. Því sé ég fyrirbæri eins og Pabbamorgna vera ágæta leið til að styðja við þá þróun. Eins og mömmumorgnar þá er þetta einkum hugsað fyrir karla í fæðingarorlofi sem og heimavinnandi húsfeður, en þó væri þetta í raun öllum
24.1.2009
Update
Hljómalind
16.00 - 16.30 Heiða Dóra
16.30 - 17.00 Daníel Jónsson
17.00 - 17.30 Stefán Örn
17.30 - 18.00 Leynigestur
18.00 - 18.30 Pása - matur
18.30 - 19.00 Hlynur Valsson
19.00 - 19.30 Seiðlæti
19.30 - 20.00 Mysterious Marta
Sunnudagur
Hljómalind
16.00 - 16.30 Árstíðir
16.30 - 17.00 Helgi Valur
17.00 - 17.30 Markús (Af Skátafrægð)
17.30 - 18.00 Marlon Pollock
18.00 - 18.30 Pása - matur
18.30 - 19.00 Sverrir Norland
19.00 - 19.30 Kristín Bergsdóttir
19.30 - 20.00 Böðvar Reynis og Co
22.1.2009
ALDREI FÓR ÉG Á REX, MUSIC FESTIVAL !
"Undercover Music Lovers á Íslandi standa á ný fyrir stórskemmtilegri
tónlistarhátíð á Café Rósenberg, Kaffi Hljómalind og Nýlenduvöruverslun
Hemma og Valda helgina 23. til 25. janúar nk.....Í þetta sinn er yfirskrift hátíðarinnar: Aldrei fór ég á REX í tilefni af hressilegum tíðindum í menningarlífi og efnahagslífi þjóðarinnar. Við fögnum hruni frjálshyggjunnar og upprisu mannhyggjunnar. Endurhæfðir Góðærisspaðar eru velkomnir ef þeir hegða sér vel og eru tilbúnir að knúsa og vera knúsaðir."
LAUGARDAGUR
Hljómalind
16.00 - 16.30 Heiða Dóra
16.30 - 17.00 Daníel Jónsson
17.30 - 18.00 Binni P
18.30 - 19.00 Pása - matur
19.00 - 19.30 Seiðlæti
19.30 - 20.00 Sverrir Norland
SUNNUDAGUR
Hljómalind
16.00 - 16.30 Árstíðir
16.30 - 17.00 Helgi Valur
17.30 - 18.00 Marlon Pollock
18.30 - 19.00 Pása - matur
19.00 - 19.30 Kristín Bergsdóttir
19.30 - 20.00 Böðvar Reynis og Co
22.1.2009
6. Þjóðfundur á Kaffi Hljómalind
6. "Þjóðfundurinn" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 24. janúar 2009. kl. 13.00 til 15:00.
Þessi tala:
Katrín Oddsdóttir laganemi og Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur.
Þessi syngur:
Erpur Eyvindarson
Þessi stjórnar fundinum:
Ellen Kristjánsdóttir söngkona



