Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Færslur: 2008 Desember

29.12.2008 21:08

harðkjarna/þungarokks tónleikar 4. janúar


Fighting Shit
Plastic Gods
Gone Postal
Monuments

Hefst kl 19:00

kostar 500 kr inn

til styrktar Hljómalind á erfiðum krepputímum..

29.12.2008 20:45

Fundir um Heimsgönguna í þágu friðar og tilveru án ofbeldis í Hljómalind

Um að ræða vikulega fundi á hverjum
sunnudegi kl. 16.00 til 18.00.

Heimsgangan er krafa um afnám kjarnavopna en einnig er öllum
styrjöldum hafnað sem lausn á deilum þjóða og hópa. Gangan er líka í
þágu tilveru án ofbeldis hvernig sem það birist, sem efnahagslegt
ofbeldi, kynþáttaofbeldi, kynjaofbeldi, trúarofbeldi eða hvers kyns
andlegt eða sálrænt ofbeldi. Þannig snertir þetta ekki bara fjarlæg
stríð heldur tilveru okkar allra hvar sem við erum.


Það eru allir velkomnir á þessa fundi. Þetta er eins og
hugmyndaveisla þar sem við erum að plana hvaða aðgerðir og uppákomur
geta orðið hér á Íslandi í tengslum við gönguna og þar kemur mjög
margt til greina bæði af hálfu einstaklinga og samtaka og hvaða hópa
sem er sem líst vel á þessa hugmynd.

Allir velkomnir að mæta!

 
Hægt er að sjá nánar um heimsgönguna á slóðinni:

www.heimsganga.is
.


25.12.2008 12:34

Zapatista - Kaffi og frelsishreyfing



Kaffið okkar kemur frá fátækustu héruðum Mexico, nánar frá Chiapas. Þar er það rækta hátt uppi af samvinnureknum fyrirtækjum bænda. Þaðan fer kaffið til Þýskalands í samvinnurekna kaffibrennslu, café libertad. Þaðan kemur það síðan til Íslands, nánar tiltekið á samvinnurekna kaffihúsið Kaffi Hljómalind. Því eru fáir milliliðir og sem mest af andvirði kaffisins rennur til framleiðandans.

Zapatista hreyfingin hefur lengið barist óvopnað fyrir sjálfstæði ,sem eru að mestu frumbyggjar svæðisins þ.e indiánar, í fjallahéröruðum Mexikó í andúð innlendra stjórnvalda. Mikið er um að fólk þar skipuleggi sig sjálft og myndi samvinnurekin fyrirtæki til að mynda í kringum kaffirækt.

Til eru nokkrar bækur um efnið í hinu stórgóða bókasafni Andspyrnu á Hljómalind.


Myndband af því þegar þeir ná herstöð án þess að nota vopn.

09.12.2008 15:24

Prout skóli

Var að fá fréttatilkynningu frá nýlegum háskóla í Ástralíu sem sérhæfir sig í Prout og samvinnufyrirtækjum:

"Now that the global financial crisis has begun to impact economies around the world, what is the way forward?

  • How can economics become a genuine agent for social transformation?
  • Are there deeper factors underlying the current financial crisis?
  • What are the grand patterns of change that can guide us through the next decades?
  • What is Neohumanism and how can it help us understand the rise of leaders such as the new American president?
  • Can feminist spirituality help us understand how to change dominant archetypes?
  • What is the role of education in personal and social transformation?
  • How can a Neohumanist education empower people to tackle socio-economic injustices?

These and other questions are explored at Prout College.

Enrol now for 2009.

sjá meira á http://proutcollege.org/

05.12.2008 23:53

3. þjóðfundur á Kaffi Hljómalind


þjóðfundur 22. nóv.


FRÉTTATILKYNNING (tekið af facebook)



Haldinn verður "Þjóðfundur" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 6. desember 2008. kl. 13.00 til 15:00.

Fengist verður við kosningafyrikomulag í lýðræði.

Þessi tala:
Viðar Þorsteinsson, heimspekingur.
Kristján Guðlaugsson, sagnfræðingur og blaðamaður.

Þessi spila og syngja:
Elíney

Kynnir er Ellen Kristjánsdóttir, söngkona

Hvernig fara kosningar fram í lýðræði? Hvað er fulltrúalýðræði og hvað er beint lýðræði? Er það rétt að "meirihlutinn ræður"? Geta 32 manneskjur tekið einhliða ákvarðanir ef 31 er á móti? Geta menn breytt reglum lýðræðisins? Er lýðræði á Íslandi?
Félög og einkaklubbar sem kalla sig stjórnmálaflokkar hafa einokað aðkomu að kjötkötlunum í rúmlega hálfa öld. Klúbbarnir hafa tekið á sig ímynd viðurkenndra stofnana og látast hafa með landstjórnina að gera. Bera þarf hitt og þetta undir "fulltrúaráð", "miðstjórn" og fleira þ.h. áður en "réttkjörnir" Alþingismenn geta bryddað upp á málum eða tekið ákvarðanir á þingi. Framboðslistar klúbbanna einoka flóruna í Alþingikosningum og fá umbun fyrir að bjóða fram í öllum kjördæmum í formi uppbótaþingmanna. Þeir fá einnig greidda opinbera styrki í hlutfalli við útkomu úr kosningum. Stjórnmálaklúbbarnir hafa mikla fjármuni milli handanna í í átökum um vinsældir meðan á kosningabaráttu stendur. Peningarnir eru notaðir m.a. í auglýsingar til að auka kosningafylgi rétt eins og um tannkrem væri að ræða. Þrátt fyrir aðkomu þeirra að þinginu og landstjórninni er nánast ekkert eftirlit með fjármál klúbbanna og alls ekki gagnsætt hvaðan fjármunir þeirra koma, né til hvers gefendur ætlast af frambjóðendum komist þeir á þing. Það gefur auga leið að svona kerfi er ávísun á spillingu.
Til þess að breyta kosningakerfinu er þörf á nýjum grunnlögum. Hér fylgja nokkrar tillögur um atriði sem þarf að skoða þegar stjórnlagaþing kemur saman. Þetta er alls ekki tæmandi.

Tillögur frá Þjóðmálahópnum FLTL (Frá lýgræði til lýðræðis) um mikilvæg atriði við gerð nýrra grunnlaga fyrir Lýðræðislega lýðveldið Ísland.

Kjósa þarf stjórnlagaþing sem vinnur tillögur að nýjum grunnlögum.

Í grunnlögunum þurfa að vera, auk annars sem stjórnlagaþingið telur nauðsynlegt, eftirfarandi atriði:

  • Lýðræðislega Lýðveldið Ísland er fullveðja sjálfstætt ríki. Tilvist lýðveldisins byggist á virðingu fyrir öllum mönnum, friði, jafnrétti, frelsi og síauknum mannréttindum.
  • Á Íslandi er ekki her.
  • Allir sem íslenskt ríkisfang hafa bera sömu skyldur og hafa sömu réttindi.
  • Allir fullveðja ríkisborgarar landsins njóta kosningaréttar til jafns. Gæta skal þó að því að minnihlutarhópar og dreifðar byggðir eigi sér ávallt fulltrúa á Alþingi.
  • Allar embættismanneskjur ríkisvaldsins skulu valdar í beinum leynilegum kosningum sem haldnar eru með reglulegu millibili, til að tryggja ábyrgð, skilvirkni og einlægni.
  • Tryggja skal rétt allra til framboðs með sanngjörnum lágmarksskilyrðum. (ath! útiloka þarf ægivald flokkanna)
  • Löggjafarvald - framkvæmdarvald og dómsvald skal vera tryggilega aðgreint þannig að enginn geti valist í embætti í meira en einu þeirra þriggja samtímis.
  • Embættismanneskjur geta ekki valið aðrar embættismanneskjur nema með samþykki þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu.
  • Setja skal í lög (eða beint hér) sanngjörn skilyrði fyrir því að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um málefni sem hana varða og ekki brjóta í bága við grunnlögin. Þar á meðal, stjórnar- og þingslit.
  • Kosið skal í beinni og sértækri þjóðaratkvæðagreiðslu um gildstöku grunnlaga sem og breytingar á þeim. Alþingi má gera tillögur að breytingum á grunnlögum.
  • Náttúruauðlindir Íslands á landi, i lofti og til sjávar ásamt nýtingarrétti á þeim eru ævarandi eign þjóðarinnar. Vernd og nýting þeirra ber ætíð að miðast við rétt komandi kynslóða til að taka við þeim óskemmdum.


03.12.2008 15:39

Miðvikudagskvöld eru prjónakvöld !

Tekið af www.prjona.net

Prjónarar eru sérstaklega velkomnir á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23, miðvikudagskvöldin fyrir jól. Prjónarar fá þá afslátt ef keypt er kaka og kaffidrykkur/te og þurfa bara að segja töfraorðin, ég er að prjóna, þegar pantað er.

 

Sjáumst þar í kvöld, 10.desember og 17.desember. 

Jólaprjón, jólaprjón.

01.12.2008 23:49

Nýjir Jógatímar á Fimmtudögum

Yoga á Hljómalind fimmtudaga kl 17: 30 -18:30.
 
Þetta er "Rajadhiraja" yoga asanas, en öðrum stílum af yoga verður blandað inn í og hafðir með.
 
Kennarinn heitir Sigga. Hún hefur stundað yoga og hugleiðslu í um 4 ár, farið á tvær yogaþjálfanir og tekið yoga kennara réttindi.
    Flettingar í dag: 219
    Gestir í dag: 38
    Flettingar í gær: 203
    Gestir í gær: 50
    Samtals flettingar: 548281
    Samtals gestir: 94104
    Tölur uppfærðar: 5.2.2012 15:38:27
    Email