Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Færslur: 2008 Nóvember

28.11.2008 22:40

Kaupum ekkert dagurinn á morgunn!

Þá er kaupum ekkert dagurinn að renna upp. Á þessum hátíðardegi erum við hvött til þess að skoða neyslu okkar og stöðva hana í 24 tíma. Einnig er þetta gott tækifæri til að skoða hvað við erum að kaupa, hvert fara peningarnir og hverja erum við að styrkja. Það munar hvort að local bóndi hér fái peninginn eða stórfyrirtæki út í heimi. Gott er að skoða fair trade og organic stimpla í því samhengi.

sjá meira á www.adbusters.org

20.11.2008 15:49

ÞJÓÐFUNDUR á laugardaginn kl 12:00

Haldinn verður "Þjóðfundur" í Kaffi Hljómalind laugardaginn 22. nóvember 2008. kl. 12.00 til 14:00.

Fengist verður við lýðræðishugmyndina.

Þessi tala:

Haukur Már Helgason, ritstjóri NEI

Magnús Helgason, sagnfræðingur

Einar Már Guðmundsson, rithöfundur

Anna Björk Einarsdóttir - kynnir Yfirlýsingu um stofnun Nýs Lýðveldis.

Þessi spila og syngja:

Piknik (Steini Hjálmur og Sigga Eyþórs)

Elíney

Kynnir er Ellen Kristjánsdóttir, söngkona

Hvað er lýðræði? Hvert er eðli þess? Er lýðræði aðeins hugsjón, nokkurs konar draumur um betri tíð? Eða er um raunverulegan valkost að ræða? Hvernig verður stjórnarskrá til? Megum við sem þjóð skipa okkar málum sjálf?

Óreiða, fégræðgi og spilling manna í trúnaðarstöðum samfélagsins hefur undanfarið afhjúpast svo rækilega að enginn getur lengur undan litið. Og enginn er ósnortinn. Valdaklíkur þjappast saman sem aldrei fyrr og reyna að tryggja sér og sínum eilífa vist í sölum valdsins þar sem óhóf, vellystingar og munaður eru fyrirmæli dagsins. Alþýða landsins skal hneppt í þrældóm um þessa sömu eilífð. Henni er ætlað að vinna, hlýða og borga brúsann. Henni verður heimilt, með hæfilegu millibili að ganga að kjörkössunum og velja milli þeirra sem þegar hafa valið sig sjálfir til að stýra aðgengi að bólgnum sjóðum auðvaldsins. Gjaldheimtumenn hafa til hagræðis safnað þessu á einn stað. En þarf þetta að vera svona? Segir hver? Megum við kannski kjósa það sem okkur sýnist? Þegar okkur sýnist.

Aðgerðahópur "Frá lýgræði til lýðræðis"

Kjósum okkur sjálf.

18.11.2008 13:11

Námskeið í desember og janúar

Vandað og ítarlegt námskeið sem eykur skilning þinn á meðgöngu, fæðingu og foreldrahlutverkinu. Áhersla er lögð á fræðslu í sambland við opnar umræður, öndun, yoga og sjálfsstyrkingu. Hentar jafnt frumbyrjum sem fjölbyrjum. Námskeiðið er opið og þú mætir því í þau skipti sem þú vilt.

  • ·Upplýsingar og kennsla í sjálfshjálp og náttúrulegum lausnum á meðgöngu, í fæðingu, við  sængurlegu og brjóstagjöf
  • Öndun, slökun og líkamsbeiting
  • Fræðsla um fæðingarferli þar sem þarfir ykkar eru í fyrirrúmi
  • Opnar umræður um allt sem viðkemur fæðingu og foreldrahlutverki
  • Horft á afar fræðandi myndbönd
  • Upplýsingar um stuðning í fæðingu, verkjastillingu, inngrip, fæðingarstaði, vatnsfæðingu, heimafæðingu o.s.fv.
  • Fræðsla um tilfinningaþroska barnsins og tengslamyndun
  • Brjóstagjöf og sængurlega
  • Opið fyrir feður/maka dagana 9. og 16. des.


Námskeiðið er haldið í salnum í Kaffi Hljómalind, Laugavegi, dagana 25.nóv, 2.des, 9.des., 16.des, 6.jan., og 13.,jan frá klukkan 16-18.
Hvert skipti kostar 1500.
Nánari uppl. fást hjá Eydísi í síma 695 5685 eða email eydis@draumafaeding.net

13.11.2008 10:49

Nýr Jóga tími hefst í dag kl 17:30

Yoga á Hljómalind fimmtudaga kl 17: 30 -18:30.
 
Þetta er Rajadhiraja yoga asanas, en öðrum stílum af yoga verður blandað inn í og hafðir með.
 
Kennarinn heitir Sigga. Hún hefur stundað yoga og hugleiðslu í um 4 ár, farið á tvær yogaþjálfanir og tekið yoga kennara réttindi.

11.11.2008 19:26

Nice webpage

Great new web that´s worth checking out. It´s about ways for Iceland to "survive" without heavy industry everywhere.

"Nattura.info is a desire for a renewal in discussion and debate on Icelandic resources; a desire for bridges between different spheres of knowledge, news, composition and productive ideas on self-sustainable evolution, on cluster of start-up companies and other ways than heavy industry"  - from the website

www.nattura.info

    Flettingar í dag: 219
    Gestir í dag: 38
    Flettingar í gær: 203
    Gestir í gær: 50
    Samtals flettingar: 548281
    Samtals gestir: 94104
    Tölur uppfærðar: 5.2.2012 15:38:27
    Email