Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Færslur: 2008 Maí

29.05.2008 10:23

Undirskriftasöfnun til verndunar samvinnureknu rekstrarformi í Evrópu

Góðan daginn, hér að neðan er undirskriftabeiðni til verndar samvinnureknu rekstrarformi í Evrópu:

"PROTECT YOUR CO-OP - PLEASE ACT NOW

Dear Friend,

the European Commission, prompted by private enterprises, are considering changing tax laws for all co-ops.
This is a serious threat to the co-operative movement across Europe. And your dividends could be at risk!
We want your support - please act before 30th May by signing this petition.
Private companies in France, Italy, and Spain, want the European Commis! sion to change the national tax rules for co-operatives. With these changes, they could reduce competition and steal the co-ops' business.
A co-operative's tax liabilities are calculated AFTER the payment of dividend to its members. Right now, the law recognises that co-op dividends are entirely different to company dividends. The spirit of their distribution is one of thanks, and recognition of its members' efforts; returning money that they have spent on the society.

If this were found to be uncompetitive, more than 250,000 co-op enterprises across Europe would be placed under heavy financial strain.

European co-operatives have bonded together to fight these accusations, and ask for your help. They do not want special privileges, only the right to compete in an open market that recognises their unique values.
In the truest spirit of co-operation, please take a few moments to sign this online petition and show the European Commission, that as members of an international co-operative movement, we all support one another.
Please pass this email on to anyone who feels as strongly about the co-operative movement as we all do.

Let's do all we can to prevent the attempts of private share-holding companies to reduce consumer choice, and end the ethical challenge of the co-operative market.

Let's force them to realise the unique relationship of co-operatives with their members will ensure that their claims are dismissed!
Yours sincerely,

Vivian Woodell
Chief Executive "
__._,_._

21.05.2008 22:45

Tvennir tónleikar á Föstudaginn

Næsta Föstudag, 23. Maí, verða tveir tónleikar á Kaffi Hljómalind.

Kl. 20:00 leikur hljómsveitin Funksveinar sem samanstendur af fimm 13 -14 ára strákum, sem spila funktónlist í anda Jagúar. Nánari upplýsingar og lög hér. Frítt inn.

Kl. 22:00 verða svo tónleikar til styrktar og stuðnings umhverfishreyfingarinnar Saving Iceland. Á tónleikunum koma fram hollenski söngvarinn Armand og kontrabassaleikarinn og sjóræninginn Captain Tobias Hume.

Armand, sem er þekktur sem hinn hollenski Bob Dylan, er mikill stuðningsmaður Saving Iceland og hefur þegar spilað nokkrum sinnum fyrir hreyfinguna í Evrópu. Þetta verða hans fyrstu tónleikar á Íslandi þar sem hann mun m.a. flytja þrjú ný lög sem hann samdi sérstaklega fyrir og um Saving Iceland.

Captain Tobias Hume er barrokk-hippi og kontrabassaleikari. Þegar hann er ekki upptekinn við að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands, skellir hann sér í sjóræningjabúninginn og syngur og spilar tónlist sem varla er hægt að lýsa með orðum... þú verður bara að koma og upplifa. Tobias hefur spilað í tveimur mótmælabúðum Saving Iceland; við Snæfell sumarið 2006 og á ráðstefnunni í Ölfussi sl. sumar.

Aðgangur er ókeypis en Tobias og Armand mæla með því að gestir styrki Saving Iceland með frjálsum framlögum.


Heimasíða Saving Iceland.

15.05.2008 13:12

Te og kaffi einir með fair trade kaffi ?

Góðan og blessaðan
Í dag fimmtudag kom heilsíðugrein um að Te og kaffi væri byrjað með fair trade kaffi. Frábært hjá þeim enda ættu öll kaffihús að sjá sóma sinn í því að vera með einungis fair trade kaffi. Spurning hvort að fair trade kaffið sé serverað sem staðal kaffi á kaffihúsunum?
Svo skilst okkur að sé aðeins í Hámu, stúdentakaffihúsinu. Í Te og kaffi í Austurstræti er ekki hægt að fá fair trade kaffi, en sem komið er, vonandi verður fair trade kaffið þó staðalkaffi í framtíðinni hjá Te og kaffi, þrátt fyrir að svo sé alls ekki enn sem komið er.
Einnig kom fram í greininni að Te og kaffi væru einir með fair trade kaffi og þarfnast það leiðréttingar hér.

Kaffi Hljómalind hefur einungis boðið upp á fair trade og lífrænt vottað kaffi frá fyrsta degi eða frá því í janúar 2005 þegar við opnuðum.

Einnig höfum við lagt áherslu á að bjóða gestum og gangandi upp á fair trade og lífrænt vottað kaffi á sama verði og hin kaffihúsin selja venjulegt óvottað kaffi. 
Það er fair trade..

Kaffi er í öðru sæti yfir vörur sem er mest verslað með í heiminum og hefur því gríðarleg áhrif hvaða verða við þróuðu löndin borgum fyrir það. Heimsmarkaðsverð er oftar en ekki það lágt að kaffibændur eru í sára fátækt við að rækta það.


Við hvetjum öll kaffihús til þess að taka sem fyrst upp þá stefnu að bjóða upp á fair trade kaffi sem staðal kaffi þegar keypt er kaffi, ekki bara að bjóða upp á það í sérverslun.

Góð mynd um kaffiverslun í heiminum heitir black gold, sjá hér


    

13.05.2008 15:40

Andspyrnubíó á morgun, 14. maí - The Fourth World War

Jahá... Andspyrnubíó einu sinni enn - hápunktur leiðinlegrar vinnuviku!
Fer fram á Kaffi Hljómalind á Miðvikudögum kl. 20:00.

Á morgun, 14. Maí sýnum við myndina The Fourth World War.

Fjórða Heimsstyrjöldin - tekið úr ræðu Marcos þar sem hann kallaði stríðið
gegn hnattvæðingu Fjórðu Heimsstyrjöldina - er ágrip yfir róttæka andspyrnu
gegn alþjóða kapítalisma. Í myndinni er blandað saman efni alls staðar að
úr heiminum t.d. Palestínu, Mexíkó, Ítalíu, Argentínu og Kóreu.

Trailer fyrir myndina má sjá hér.

Byrjar kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.
Mættu og láttu sem flesta vita!

06.05.2008 10:40

Andspyrnubíó Mið. 7. Maí - 500 Violent Stonethrowing Psycho Punks From Hell

Andspyrna heldur áfram að dekra við róttæklinga landsins, jafnt sem aðra áhugasama og bíður uppá kvikmyndasýningar á hverjum Miðvikudegi í Maí. Sýningarnar fara fram á Kaffi Hljómalind kl. 20:00.

Núna á Miðvikudaginn, 7. Maí sýnum við glænýja mynd? 500 Violent Stonethrowing Psycho Punks From Hell
- Í níu var Ungdómshúsið í Kaupmannahöfn starfrækt undir stanslausri hættu á því að starfseminni yrði hent út og húsið rifið niður, sem svo loks gerðist 1. Mars 2007. Myndin fjallar um þá sem störfuðu og lifðu í húsinu á þeim tíma.

Trailerinn fyrir myndina má sjá hér.

Hefst kl. 20:00 og sjálfsögðu er frítt inn!


02.05.2008 11:06

StirðramannaJóga í dag klukkan 17:00

Stiff peoples yoga(beginners) in Kaffi Hljómalind

At 17:15 today, and every friday..

Streching, Yoga postures, self massage, deep relaxation and
meditation.
All are welcome - free entrance


01.05.2008 13:20

1. maí á Hljómalind

Til hamingju verkalýður með 1.maí

Kaffi Hljómalind mun taka á móti gestum og gangandi eftir gönguna og opnum við því ekki fyrr en 14:00

Dagskráin er svohljóðandi:

14-16 Snobb fyrir alla XVI - Meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja verk eftir Gabrieli
16-17 ÍSLAND-PALESTÍNA kynnir starfsemi sína og selur varning til styrktar baráttunni.
17-18 Umhverfishreyfingin SAVING ICELAND kynnir baráttu sína í máli og myndum
18-19 And-rasisma hópurinn ÍSLAND PANORAMA fjallar um rasisma og þjóðfélagsleg málefni
19-20 Queer fræði og anarkó-feminismi, fyrirlestur og umræður.
21:30 - 23 Tónleikar: Spirit of Moonflower, The Custom og fiðluleikarinn Karl Pestka
    Flettingar í dag: 125
    Gestir í dag: 34
    Flettingar í gær: 203
    Gestir í gær: 50
    Samtals flettingar: 548187
    Samtals gestir: 94100
    Tölur uppfærðar: 5.2.2012 13:25:11
    Email