Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Tenglar

Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Færslur: 2008 Apríl

29.04.2008 10:18

Andspyrnubíó 30. Apríl - All The Power To The People

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Núna á Miðvikudaginn, 30. Apríl sýnum við myndina All Power To The People.

The Black Panther Party var róttækur baráttuhópur blökkumanna í Bandaríkjunum sem starfaði frá miðjum sjöunda áratugnum að upphafi þess áttunda. Eftir dauða Malcom X árið 1965 fannst Svörtu Pardusunum að réttindabarátta blökkumanna þyrfti að ná öðrum hæðum. Hópurinn kallaði eftir vopnaðri andspyrnu í þeim tilgangi að stuðla að auknum réttindum svartra. Pólítísk markmið hópsins áttu það til að missa athygli vegna herskárra aðgerða hans þar sem heimspeki og aðferðfræði hópsins varð róttækari þegar á leið.

Nánar um myndina hér.

Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.

25.04.2008 11:32

Samspil Hilmars Jenssonar úr FÍH

Í kvöld, föstudaginn 25. apríl leikur Samspil Hilmars Jenssonar úr FÍH á Kaffi Hljómalind. Hvað það leikur veit nú enginn vandi er um slíkt að spá, en eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá. Gaman þá...

Byrjar kl. 21:00 og það er auðvitað frítt inn!

21.04.2008 23:51

Andspyrnubíó Miðvikudaginn 23. Apríl - Bolivia Is Not For Sale

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Núna á Miðvikudaginn, þann 23. Apríl sýnum við myndina Bolivia Is Not For Sale
Auðlindum Bólívísku þjóðarinnar var rænt af henni, en íbúar landsins halda virðingu sinni og halda áfram að berjast. Mótmæla-alda reis í Október 2003 sem varð til þess að forseti landsins hröklaðist úr embætti og bandaríska heimsveldinu var alvarlega ögrað. Baráttan gegn sölu bólívískra náttúruauðlinda til alþjóða stórfyrirtækja heldur áfram og er á sama tíma kjarkmikil árás á nýfrjálshyggjuna.

Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.

19.04.2008 13:30

Sivertsen - Samvinnurekið Systrakaffihús Hljómalindar í Noregi


Nú er búið að opna annað kaffihús byggt á svipuðum grunni og Kaffi Hljómalind af Jóni Karli Hljómmara og Inu. Við óskum þeim kærlega til lukku með þetta !!!
Hér kemur lýsing á því:
Sivertsens er framhald á hugmyndinni sem liggur að baki Hljómalind að mörgu leyti. Fyrirtækið er samvinnurekið, sem stendur eru eigendurnir bara tveir, en þeim mun vonandi fjölga. Kaffihúsið er staðsett í kjallara sögufrægrar byggingar, gamla ráðhússins og síðar fangelsisins í Tromsø og kjallarinn er best þekktur sem "fyllearesten", þ.e. hingað voru their fluttir sem thóttu of ölvaðir fyrir viðkvæma bæjarbúa. Nú hýsir þetta fornfræga hús frábæran selskap áhugalistamanna og svokallaðra frjálsa atvinnulistamanna. Rótin af thví liggur í raun í margra ára hústöku áhugaleikhópa sem settust hér að og nýttu sér aðstöðuna til að rækta listina eftir að fangelsi og ráðhús voru farin í önnur húsnæði. Eftir margra ára baráttu náðu þessir hópar því fram að byggingin yrði þeirra staður. Áhugamannalistamenn geta því nú notað húsnæðið án endurgjalds og hér er mikið líf. Nýlega var sýningarsalurinn hér endurbættur og sýningum þar fer fjölgandi. Til að halda utan um starfsemina er svo fyrirbærið Rådstua Teaterhus, sem samhæfir starfsemina í húsinu. Kjallarinn hafði hinsvegar lítið verið notaður og aðstaða fyrir gesti var lítil sem engin. Í mörg ár hafði verið rætt um að hafa kaffiaðstöðu í kjallaranum, en ekkert gert. þessvegna létum við slag standa og gerðum tilboð. Sivertsens starfar náið með Rådstua og við skuldbindum okkur til að hafa opið fyrir allar sýningar og veita þeim sem vinna í húsinu afslátt o.s.frv.
Sivertsens er fyrsta grænmetis-kaffihús Tromsøbæjar. Bæjarbúar eru ekki vanir slíku fæði, en eru óðum að komast á bragðið. Megin markmið Sivertsens, skv. stjórnarskrá, er að stunda "etískan" rekstur. Thað felur m.a. í sér að stuðla ekki að dýradrápi, kaupa lifrænt ræktuð eða "local" ræktuð matvæli, stunda umhverfisvænan rekstur (flokka allt sorp, nota ekki einnota umbúðir" o.s.frv.), notast við vörur sem fengnar eru með heiðarlegum hætti (fair trade, direct handling), selja að jafnaði ekki áfengi (undantekningar þegar kjallarinn er leigður út), reyna að fá sem flesta til að gerast meðlimir í samvinnufélaginu og hafa virka starfsemi fyrir frjálsa listamenn og grasrótarhópa.
Nafnið, Sivertsens kafékooperativ, kemur til vegna thess að sögur ganga um að húsið sé reimt. Um er að ræða manngarm sem lét lífið í fyllearresten forðum og gengur nú um húsið. Sá heitir einmitt Sivertsens.
Fjöliðlar hafa sýnt Sivertsens áhuga, t.d. hér http://www.nordlys.no/lordag/article3482296.ece og reksturinn gengur ljómandi.
 
Kk. Jón Karl



14.04.2008 18:09

Andspyrnubíó Miðvikudaginn 16. Apríl - Angry Brigade

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Núna á Miðvikudaginn, 16. Apríl sýnum við mynd um The Angry Brigade sem var hópur anarkista sem stóð fyrir röð sprenginga á Bretlandi á árunum 1970 - 1972. Meðal skotmarka hópsins voru bankar, sendiráð og heimili þingmanna. Meðal meðlima hópsins var Stuart Christie sem áður hafði verið handtekinn á Spáni fyrir að reyna að myrða Franco. Aðgerðum hópsins lauk með einum lengstu glæpa réttarhöldum (criminal trials) í sögu Englands.

Nánar um The Angry Brigade hér.

Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.

13.04.2008 15:58

TÍBET - Upplýsingafundur og umræður

TÍBET - Upplýsingafundur og umræður

Þriðjudaginn 15. arpíl 2008 fer fram uppýsinga- og umræðufundur um Tíbet í félagsrými Kaffi Hljómalindar, Laugavegi 23, kl. 20:00.

Birgitta Jónsdóttir (http://birgitta.blog.is) og Tsewang Namgyal frá Tíbet munu leiða fundinn; segja frá því sem er að gerast í Kína og Tíbet og stjórna umræðum. Einnig verður sýnd kvikyndin Undercover in Tibet.

Á staðnum er tölva, internet og myndvarpi og eru allir sem hafa eitthvað efni til að sýna velkomnir til að nota sér aðstöðuna.

Fundurinn verður einnig sendur beint út á netinu og má finna slóð á útsendinguna á vefsíðu Hljómalindar http://www.kaffihljomalind.org

Við vonumst til þess að sem flestir láti sjá sig, til að læra og fræðast, miðla þekkingu og skoðunum. Fundurinn mun fara fram á ensku.

10.04.2008 13:13

Jóga á Hljómalind - mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og laugadaga




Jóga í sal Hljómalindar


Mánudagar - Jóga fyrir konur - kl. 16:45 - Helena kennir

Miðvikudagar kl. 18:00 - Beggi kennir

Föstudagar - Stirðramannajóga kl 17:00 - Einar kennir

Laugadagar  kl. 12:00 - Beggi kennir

04.04.2008 11:42

Stofnfundur Vina Tíbets Sunnudag kl 13:00


Á sunnudaginn mun verða haldinn stofnfundur Vina Tíbets. Hann verður haldinn á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23, klukkan 13 og öllum frjálst að mæta sem vilja styðja við þetta málefni eða bara næla sér í aukna fræðslu um Tíbet.

sjá nánar hér

01.04.2008 10:43

Andspyrnubíó Miðvikudaginn 2. Apríl - Terrorists: The Kids they Sentenced

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Miðvikudaginn 2. Apríl sýnum við myndina Terrorists: The Kids They Sentenced. Nokkrir einstaklingar á aldrinum 19 - 30 ára voru handteknir og dæmdir til fangelsisvistar eftir mótmæli í tengslum við ráðstefnu Evrópusambandsins í Gautaborg árið 2001. Lukas Moodyson talar við hin dæmdu um tilgang mótmælanna, handtökurnar, aðgerðir lögreglu, framtíðina og fleira.

Örlítið meira um myndina hér og umfjöllun um Gautaborgarmótmælin 2001 er hér.

Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.
    Flettingar í dag: 125
    Gestir í dag: 34
    Flettingar í gær: 203
    Gestir í gær: 50
    Samtals flettingar: 548187
    Samtals gestir: 94100
    Tölur uppfærðar: 5.2.2012 13:25:11
    Email