Fréttir
26.3.2008
Forsíðan á fréttablaðinu í dag

Lífræn stemning
Á meðan kuldinn beit í kinnar vegfarenda á Laugaveginum sátu þessar
tvær stöllur í hlýindum inni á Kaffi Hljómalind og gæddu sér á lífrænum veigum.
Kaffihúsið hefur þá sérstöðu að vera samvinnurekið, þar sem allir starfsmenn
þess
eru meðeigendur og hafa atkvæðarétt um reksturinn.
fréttablaðið/stefán
26.3.2008
Lífrænt grænmeti getur verið hollara heldur en efnaræktað grænmeti samkvæmt 10 ára rannsókn.

Lífrænir ávextir og grænmeti geta verið betri fyrir þig heldur en hefðbundið grænmeti, samkvæmt rannsókn frá USA.
10 ára rannsókn sem fólst í því að bera saman lífrænt ræktaða tómata við hefðbundna, fundu næstum tvöfalt magn flavonoid, sem er andoxunarefni.
Flavonoid hefur sýnt fram á að það minnkar blóðþrýsting, minnkar hættuna á hjartasjúkdómum og hjartaáfalli.
Rannsóknarhópurinn heldur því fram að nítrógen í jarðveginum geti verið lykillinn að þessu.
Dr. Alyson Mitchell, efnafræðingur í Háskólanum í Kaliforníu, ásamt samstarfsmönnum sínum mældu magn tveggja flavonoida - quercetin og kaempferol - í þurrkuðum tómötum sem safnað hafði verið saman sem partur af langtíma rannsókn á ræktunar aðferðum.
Þessi efni voru að meðaltali 79% og 97% meiri í lífrænum tómötum heldur en í hefðbundnum.
New Scientist skýrði frá því að þessi mismunur væri líklega vegna fjarveru tilbúins áburðar í lífrænni ræktun.
Frétt tekin af graenihlekkurinn.is
Upprunalega var fréttin tekin af fréttavef bbc.
Hægt er að sjá alla fréttina hér.
25.3.2008
Bloggað um laugaveginn
18.3.2008
Andspyrnubíó
Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.
Bandarísku róttæklingarnir í The Weathermen færðu Víetnamstríðið heim og sprengdu upp opinberar byggingar ríkisstjórnarinnar. Meðlimir fóru huldu höfði en gáfu sig seinna fram og útskýra í myndinni upphaf og endi hreyfingarinnar, og allt þar á milli.Nánar um myndina hér.
Eftir á verða umræður og boðið upp á Kaffi.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir.
13.3.2008
Andspyrnubio
Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.
The Coconut Revolution er kvikmynd um sigur. Íbúar eyjunnar Bouganville voru orðnir þreyttir á því að horfa upp á umhverfi sitt eyðilagt og risu upp gegn námurisanum Rio Tinto, en Rio Tinto er einmitt eigandi álfyrirtækisins Alcan. Úr varð heimsins fyrsta umhverfis-bylting (eco-revolution).
Nánar um myndina hér.
Eftir á verða umræður og boðið upp á Kaffi.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir.



