Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús


6. okt - 12. okt
Breast feeding
Week

Miðvikudagur
Ghettó Jóga
kl 18:00

laugardagur 
Ghettó Jóga
kl 12:00



Kaffi Hljómalind

Msn netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Tenglar

Fréttir

26.3.2008

Forsíðan á fréttablaðinu í dag





Lífræn stemning
Á meðan kuldinn beit í kinnar vegfarenda á Laugaveginum sátu þessar
tvær stöllur í hlýindum inni á Kaffi Hljómalind og gæddu sér á lífrænum veigum.
Kaffihúsið hefur þá sérstöðu að vera samvinnurekið, þar sem allir starfsmenn þess
eru meðeigendur og hafa atkvæðarétt um reksturinn.

fréttablaðið/stefán







Skrifað 26.3.2008 kl. 11:36 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.3.2008

Lífrænt grænmeti getur verið hollara heldur en efnaræktað grænmeti samkvæmt 10 ára rannsókn.


Lífrænir ávextir og grænmeti geta verið betri fyrir þig heldur en hefðbundið grænmeti, samkvæmt rannsókn frá USA.

10 ára rannsókn sem fólst í því að bera saman lífrænt ræktaða tómata við hefðbundna, fundu næstum tvöfalt magn flavonoid, sem er andoxunarefni.

Flavonoid hefur sýnt fram á að það minnkar blóðþrýsting,  minnkar hættuna á hjartasjúkdómum og hjartaáfalli.

Rannsóknarhópurinn heldur því fram að nítrógen í jarðveginum geti verið lykillinn að þessu.

Dr. Alyson Mitchell, efnafræðingur í Háskólanum í Kaliforníu, ásamt samstarfsmönnum sínum mældu magn tveggja flavonoida - quercetin og kaempferol - í þurrkuðum tómötum sem safnað hafði verið saman sem partur af langtíma rannsókn á ræktunar aðferðum.

Þessi efni voru að meðaltali 79% og 97% meiri í lífrænum tómötum heldur en í hefðbundnum.

New Scientist skýrði frá því að þessi mismunur væri líklega vegna fjarveru tilbúins áburðar í lífrænni ræktun.

Frétt tekin af graenihlekkurinn.is

Upprunalega var fréttin tekin af fréttavef bbc.

Hægt er að sjá alla fréttina hér.

Skrifað 26.3.2008 kl. 10:44 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.3.2008

Bloggað um laugaveginn

athyglisvert blogg um laugaveginn og öll húsin sem þar standa auð þessa stundina
Veffarinn

Skrifað 25.3.2008 kl. 16:49 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.3.2008

Andspyrnubíó

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Bandarísku róttæklingarnir í The Weathermen færðu Víetnamstríðið heim og sprengdu upp opinberar byggingar ríkisstjórnarinnar. Meðlimir fóru huldu höfði en gáfu sig seinna fram og útskýra í myndinni upphaf og endi hreyfingarinnar, og allt þar á milli.Nánar um myndina hér.

Eftir á verða umræður og boðið upp á Kaffi.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir.

Skrifað 18.3.2008 kl. 11:54 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.3.2008

Andspyrnubio

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

The Coconut Revolution er kvikmynd um sigur. Íbúar eyjunnar Bouganville voru orðnir þreyttir á því að horfa upp á umhverfi sitt eyðilagt og risu upp gegn námurisanum Rio Tinto, en Rio Tinto er einmitt eigandi álfyrirtækisins Alcan. Úr varð heimsins fyrsta umhverfis-bylting (eco-revolution).

Nánar um myndina hér.

Eftir á verða umræður og boðið upp á Kaffi.
Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir.

Skrifað 13.3.2008 kl. 19:47 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.3.2008

AndspyrnuBíó alla miðvikudaga - A place called Chiapas

Skoða nánar

6.3.2008

Zapatista - Kaffi og frelsishreyfing

Skoða nánar

3.3.2008

Opnunarpartý miðvikudaginn næstkomandi 5. mars klukkan 20:00 !!

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 300
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 243
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 60987
Samtals gestir: 12767
Tölur uppfærðar: 11.10.2008 19:21:49
Email