Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús


6. okt - 12. okt
Breast feeding
Week

Miðvikudagur
Ghettó Jóga
kl 18:00

laugardagur 
Ghettó Jóga
kl 12:00



Kaffi Hljómalind

Msn netfang:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Heimilisfang:

Laugavegur 23

Heimasími:

5171980

Um:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Tenglar

Fréttir

10.10.2008

Fundur á Kaffi Hljómalind kl 16:00

Það verður haldin samkoma í baksal Hljómalinda kl 16:00 á morgunn Laugardag. Eftirfarandi fréttatilkynning er frá skipuleggjendum:

"Þessi samkoma er neyðarfundur þeirra sem ætla ekki að vera aðgerðalausir á þessum afdrifaríku tímum. Eitthvað þarf að gerast og nú er kominn tími til að Íslendingar snúi bökum saman og beiti sér fyrir friðsamlegum mótmælum til að grípa í taumana áður en við verðum endanlega þrælar skulda. Skulda af peningum sem við sáum aldrei!  Íslendingar skulda víst 25 milljónir á mann, ég veit ekki með þig en slíkri fjárhæð hef ég aldrei komið nálægt á allri minni ævi! Hvernig get ég skuldað einhverjum hana?

Það er alltof auðvelt að "chilla" bara og vona að þetta reddist. Reddum þessu fyrst og chillum síðan!

Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í umræðum um hvað sé hægt að gera til að takast á við ástandið eru meira en velkomnir á þennan fund, og takið þá með ykkur sem þið vitið að þrá breytingar líka! Ísland er nógu lítið til að hópur af hugrökku fólki með hugsjónir geti breytt stefnu allrar þjóðarinnar.

Mætið og verum bjartsýn, því það er alveg satt... þetta reddast! við þurfum bara að nenna að redda því. Þá er það ekkert mál.

Kaffi Hljómalind, laugardagur 11.október klukkan 4."

Skrifað 10.10.2008 kl. 16:10 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.10.2008

Breyting á matseðli - Móðir Náttúra

Góðan daginn

Uppfærður hefur verið matseðillinn á Hljómalind. Við höfum hafið samstarf við móðir náttúru um matargerð fyrir okkur.
Því munu Burritosin okkar og lasagnað detta út en í staðinn kemur

Tortilla, indverskar pönnukökur og lasagna frá móðir náttúru. Allt afskaplega bragðgóður matur. Maturinn þaðan inniheldur lauk og getur því ekki talist til jógafæðis, þar af leiðandi mun ekki allur maturinn á Kaffi Hljómalind vera skv. jógafæðistandördum.
Einnig er maturinn þaðan ekki 100% lífrænn en þau reyna sitt besta að hafa allt sem umhverfisvænast.

Stefnuyfirlýsing Móðir náttúru tekið af www.modirnattura.is :

"Við hjá Móður Náttúru sérhæfum okkur í gerð næringarríkra, ljúffengra og hollra grænmetisrétta. Við notum ávallt, fyrsta flokks, ferskt grænmeti við matargerðina. Engin óæskilega aukefni eru notuð við matargerðina. Við leggjum metnað í að gæði handverksins og heimalagaða bragðið haldi sér í gegnum alla framleiðsluna
.."


Við höldum áfram að gera annað eins og t.d súpuna, kökurnar, engiferölið..

Nánari upplýsingar:

Tortillas með linsufyllingu

Innihald:

Hveitikökur með grænmetisfyllingu. Linsufylling: Linsur, sætar kartöflur, hvítkál, laukur, tóamtar, sojaostur, olía og krydd án msg og aukaefna.

Indverskar pönnukökur

Innihald:

Hveitikökur með grænmetisfyllingu.
Laukur, nýrnabaunir, blómkál, tómatar, aprikósur, olía og krydd án msg og aukaefna

Grænmetislasagne með sojakjöti.

Innihald:

Tómatar, laukur, gulrætur, sætar kartöflur, soyjakjöt, mjólk, sojaostur, speltlasagneblöð, laufkrydd, svartur pipar, salt, krydd. Án Msg og aukefna


Takk fyrir

Skrifað 10.10.2008 kl. 10:37 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.10.2008

Brjóstagjafavika

Góðan daginn

Nú er hin alþjóðlega brjóstagjafavika hafin. Á kaffi Hljómalind verður ljósmyndasýning í baksalnum á Kaffi Hljómalind. Hér kemur um vikuna og sýninguna af www.brjostagjafavika.org:

Alþjóðlega brjóstagjafavikan formlega sett og opnun ljósmyndasýningarinnar ,,Drekkutími"
eftir Guðrúnu Valdimarsdóttur áhugaljósmyndara á Kaffi Hljómalind.

Ljósmyndasýningin Drekkutími er sett upp í tilefni alþjóðlegu brjóstagjafavikunnar á Íslandi 6.-12.október. Sýningin er samstarfsverkefni Soffíu Bæringsdóttur, Aðalheiðar Atladóttur, Dagnýjar Óskar Ásgeirsdóttur og Guðrúnar Valdimarsdóttur en hún tók myndirnar og sá um vinnslu og uppsetningu sýningarinnar.

Á sýningunni eru alls um fjörtíu myndir af brjóstfæddum börnum. Átta myndir eru teknar í stúdíói í tilefni vikunnar en flestar myndir eru innsendar.

Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að vekja athygli á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Auk þess að beina sjónum að mikilvægi brjóstagjafar var ákveðið að minna á fegurð brjóstagjafar. Benda á að fegurðin býr í hversdagsleikanum og nándina sem myndast milli móður og barns.

Ljósmyndasýningin ,,drekkutími" er til að minna á hve einstakur tími brjóstagjafar er. Því um leið og brjóstagjöf er einstök og persónuleg er hún á sama tíma opin og snertir alla í samfélaginu.

Með ljósmyndasýningunni er brjóstagjöf sýnd eins og hún er frá degi til dags.




Skrifað 6.10.2008 kl. 20:56 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.10.2008

Jóga í dag/Yoga today

Jóga að vanda í dag klukkan 18:00 í baksal kaffi Hljómalind. Ókeypis inn

Yoga today at 18:00 in the backhall of Hljómalind. Free entrance

Skrifað 1.10.2008 kl. 13:58 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.9.2008

Tónleikar/Concert í kveld/tonight


Skrifað 19.9.2008 kl. 13:57 af Kaffi Hljómalind

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.9.2008

Tónleikar/concert today

Skoða nánar

18.9.2008

Kaffihús lokað föstudag frá 17:30-19:00

Skoða nánar

18.9.2008

Bíósýning, föstudag - PROUT, economic democracy in practice

Skoða nánar

15.9.2008

Meditation in the social Center

Skoða nánar

15.9.2008

Smashedo Movie Night monday 15th

Skoða nánar

7.9.2008

Fundur Félagsrýmis í kvöld/Community space meeting tonight

Skoða nánar

5.9.2008

Tónleikar í kvöld. Concert tonight.

Skoða nánar

25.8.2008

Póstlisti Kaffi Hljómalindar/mailing list of Kaffi Hljómalind

Skoða nánar

24.8.2008

Myndir frá menningarnótt

Skoða nánar

19.8.2008

Menningarnótt í Kaffi Hljómalind/Cultural night in Kaffi Hljómalind

Skoða nánar

11.8.2008

Ótitlað

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 274
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 243
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 60961
Samtals gestir: 12765
Tölur uppfærðar: 11.10.2008 19:00:34
Email