Category: Sivertsen-vinakaffihús Hljómalindar
19.04.2008 13:30
Sivertsen - Samvinnurekið Systrakaffihús Hljómalindar í Noregi
Nú er búið að opna annað kaffihús byggt á svipuðum grunni og Kaffi Hljómalind af Jóni Karli Hljómmara og Inu. Við óskum þeim kærlega til lukku með þetta !!!
Hér kemur lýsing á því:
Já
Sivertsens er framhald á hugmyndinni sem liggur að baki Hljómalind að mörgu leyti. Fyrirtækið er samvinnurekið, sem stendur eru eigendurnir bara tveir, en þeim mun vonandi fjölga. Kaffihúsið er staðsett í kjallara sögufrægrar byggingar, gamla ráðhússins og síðar fangelsisins í Tromsø og kjallarinn er best þekktur sem "fyllearesten", þ.e. hingað voru their fluttir sem thóttu of ölvaðir fyrir viðkvæma bæjarbúa. Nú hýsir þetta fornfræga hús frábæran selskap áhugalistamanna og svokallaðra frjálsa atvinnulistamanna. Rótin af thví liggur í raun í margra ára hústöku áhugaleikhópa sem settust hér að og nýttu sér aðstöðuna til að rækta listina eftir að fangelsi og ráðhús voru farin í önnur húsnæði. Eftir margra ára baráttu náðu þessir hópar því fram að byggingin yrði þeirra staður. Áhugamannalistamenn geta því nú notað húsnæðið án endurgjalds og hér er mikið líf. Nýlega var sýningarsalurinn hér endurbættur og sýningum þar fer fjölgandi. Til að halda utan um starfsemina er svo fyrirbærið Rådstua Teaterhus, sem samhæfir starfsemina í húsinu. Kjallarinn hafði hinsvegar lítið verið notaður og aðstaða fyrir gesti var lítil sem engin. Í mörg ár hafði verið rætt um að hafa kaffiaðstöðu í kjallaranum, en ekkert gert. þessvegna létum við slag standa og gerðum tilboð. Sivertsens starfar náið með Rådstua og við skuldbindum okkur til að hafa opið fyrir allar sýningar og veita þeim sem vinna í húsinu afslátt o.s.frv.
Sivertsens er fyrsta grænmetis-kaffihús Tromsøbæjar. Bæjarbúar eru ekki vanir slíku fæði, en eru óðum að komast á bragðið. Megin markmið Sivertsens, skv. stjórnarskrá, er að stunda "etískan" rekstur. Thað felur m.a. í sér að stuðla ekki að dýradrápi, kaupa lifrænt ræktuð eða "local" ræktuð matvæli, stunda umhverfisvænan rekstur (flokka allt sorp, nota ekki einnota umbúðir" o.s.frv.), notast við vörur sem fengnar eru með heiðarlegum hætti (fair trade, direct handling), selja að jafnaði ekki áfengi (undantekningar þegar kjallarinn er leigður út), reyna að fá sem flesta til að gerast meðlimir í samvinnufélaginu og hafa virka starfsemi fyrir frjálsa listamenn og grasrótarhópa.
Nafnið, Sivertsens kafékooperativ, kemur til vegna thess að sögur ganga um að húsið sé reimt. Um er að ræða manngarm sem lét lífið í fyllearresten forðum og gengur nú um húsið. Sá heitir einmitt Sivertsens.
Fjöliðlar hafa sýnt Sivertsens áhuga, t.d. hér http://www.nordlys.no/lordag/article3482296.ece og reksturinn gengur ljómandi.
Kk. Jón Karl


Written by Andspyrna
Today's page views: 215
Today's unique visitors: 37
Yesterday's page views: 203
Yesterday's unique visitors: 50
Total page views: 548277
Total unique visitors: 94103
Updated numbers: 5.2.2012 15:13:19



