Kaffi Hljómalind

Umhverfisvænt Kaffihús





Fastir Tímar
Miðvikudagar
Kl. 10:00
Pabba morgnar
Kl. 18:00
Ghettó Jóga
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Fimmtudagar
Kl. 17:30
Jógatími með Siggu
Jógaæfingar, slökun
og hugleiðsla
Laugardagar
Kl. 12:00
Ghettó Jóga

Jóga þrisvar í viku á Hljómó
Hressandi, skemmtilegt og frítt!










Kaffi Hljómalind

MSN user name:

Social center: kaffihljomalind@gmail.com

Address:

Laugavegur 23

Phone:

5171980

About:

Lífrænar og fair trade jurtafæðis veitingar, samvinnurekið, byggir á P.R.O.U.T, bókasafn andspyrnu, tónleikar, bíósýningar, jóga, listasýningar ofl, nemendagallerí listaháskólans. Vertu velkomin/nn
Skráðu þig á póstlista hér

Hvað vantar á Kaffi Hljómalind

 Croissant

 Fleiri Te

 Meiri mat

 Boost drykki

 Nýkreista safa


Show results

Links

Fréttir

20.3.2009

Hvað er Kaffi Hljómalind?

 Kaffi Hljómalind er áfengis- og vímuefnalaust kaffihús og menningarmiðstöð. Það er samvinnurekið, sem þýðir að það er  ekki rekið í hagnaðarskyni heldur með það að markmiði að auka félagsauð og hafa jákvæð, uppbyggileg áhrif á samfélagið.  Allur umframágóði eftir fastan kostnað rennur beint inn í  starfsemina fyrir utan lítinn hluta sem rennur í góðgerðarmál.


 Bakatil í Hljómalind er fjölnota salur; félagsrými, sem er opið  allri starfsemi, endurgjaldslaust. Með því að bjóða þetta rými vill Kaffi Hljómalind leggja öllu góðu málefni lið og leggja af mörkum til grasrótarhópa sem hafa lítið fé milli handanna. Hljómalind skaffar rýmið - hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur almennings sér um restina. Þetta fyrirkomulag hefur gefið gífurlega góða raun, Hljómalind er dínamískur staður í stöðugum vexti.

Allar götur frá opnun eru viðburðir Hljómalindar að meðaltali einn á dag. Má þar nefna jóga- og danstíma, ljóðaupplestur, saumaklúbba, hráfæðisnámskeið, fyrirlestra af ýmsu tagi, kvikmynda-, dans- og myndlistarsýningar, grasrótarfundi, stofnun ýmissa félaga s.s. fair trade félag Íslands og vinir Tíbets, málstofur, ráðstefnur, námskeið, tónleika, pabbamorgna, pólitískar umræður o.s.frv. o.s.frv. Listinn er endalaus.

Hljómalind er löngu þekkt fyrir lifandi tónlist, en þar hafa ótal hljómsveitir spilað. Allur tónlistarskalinn hefur hljómað þar; harðkjarni, djass, klassík, popp, raftónlist, þjóðlagatónlist, rokk o.s.frv. Grasrótin hefur mikið spilað á Hljómalind og er sérstök áhersla lögð á að halda dyrunum opnum fyrir ungu kynslóðinni, þ.e. grunn- og menntaskólanemum, sem hefur ekki í mörg hús að venda sökum aldurstakmarks.

Kaffi Hljómalind er rólegur og afslappaður staður þar sem hægt er að setjast í mjúkan hægindastól og lesa fróðlegar bækur um ýmis málefni. Ávallt hefur verið hægt að kaupa góðar bækur á Hljómalind en nú hefur bæst við bókasafn sem gerir fólki kleift að fá lánaða bók heim, endurgjaldslaust.

Á Kaffi Hljómalind eru eingöngu seldar lífrænar veitingar og "fair trade" þegar því er viðkomið. Við flytjum kaffið okkar inn sjálf, beint frá frelsishreyfingu Sapatista í Mexíkó. Við sem rekum Hljómalind viljum að allir hafi þann valkost að neyta lífrænna veitingar, án þess að þurfa að tæma budduna alveg og því eru verðin okkar svipuð og verð annara kaffihúsa.

Segja má að Kaffi Hljómalind sé sambærileg við félagsmiðstöð, þar sem selt er "kaffi og meðí" til að eiga fyrir leigunni og öðrum rekstrarkostnaði.




Written 20.3.2009 kl. 13:05 by Kaffi Hljómalind

Direct link

No comments - be the first to post a comment!

28.10.2008

Veraldarvafur

Alltaf gaman að skoða vefinn. Fann fallegt bréf til borgastjóra út af Hljómalind og Sirkus frá því í janúar hér

Written 28.10.2008 kl. 19:59 by Kaffi Hljómalind

Direct link

No comments - be the first to post a comment!

26.3.2008

Forsíðan á fréttablaðinu í dag





Lífræn stemning
Á meðan kuldinn beit í kinnar vegfarenda á Laugaveginum sátu þessar
tvær stöllur í hlýindum inni á Kaffi Hljómalind og gæddu sér á lífrænum veigum.
Kaffihúsið hefur þá sérstöðu að vera samvinnurekið, þar sem allir starfsmenn þess
eru meðeigendur og hafa atkvæðarétt um reksturinn.

fréttablaðið/stefán







Written 26.3.2008 kl. 11:36 by Kaffi Hljómalind

Direct link

No comments - be the first to post a comment!

3.3.2008

Opnunarpartý miðvikudaginn næstkomandi 5. mars klukkan 20:00 !!

 


Við bjóðum vini Kaffi Hljómalindar alla hjartanlega velkomna á miðvikudaginn klukkan 20:00 þegar við opnun nýjan yndislegan samverustað

Dagskrá

Dean Ferrel -

kk

Widespace

Picknick

Retro stefson

Hjálmar


Eldgleypar, sirkus fjölleikafólk og trommuhringur







Written 3.3.2008 kl. 16:01 by Kaffi Hljómalind

Direct link

No comments - be the first to post a comment!

21.1.2008

Framkvæmdir halda ótrauðar áfram - Construction work keeps on rolling

Síðasta helgin var tekin með trompi og mætti fullt af fólki á sunnudeginum og lét sitt ekki eftir liggja. Gólfið hefur tekið sinn tíma en nú er það preppað og búið að sulla málningu á nokkra veggi , bráðum fer eldhúsið að breiða út faðm sinn og vonandi barinn,

Nóg af verkefnum og fólk að alla daga fyrir þá sem hafa áhuga endilega lítið við og takið upp naglbít eða hamar.

Last weekend good and a lot of people came on sunday to work. The floor has been time consuming but it is finished and ready for polishing there has also been painted and soon the kitchen will hopefully be ready and the bar.

everybody that want to work are welcome, there are always sombody there except evenings on weekdays..


Written 21.1.2008 kl. 15:12 by Kaffi Hljómalind

Direct link

No comments - be the first to post a comment!

13.1.2008

Kaffi Hljómalind flytur í nýtt húsnæði

Closer look

Home

Today's page views: 165
Today's unique visitors: 28
Yesterday's page views: 1264
Yesterday's unique visitors: 111
Total page views: 374459
Total unique visitors: 57440
Updated numbers: 7.9.2010 07:55:03
Email